fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Pressan

Svona er hægt að afþíða frystinn á skömmum tíma með álpappír

Pressan
Laugardaginn 11. apríl 2026 13:30

Það þarf að afþíða frystinn öðru hvoru.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekki óalgengt að hrím og klaki setjist á ýmsa staði í frystinum. Með tímanum safnast þetta saman og veldur bæði praktískum og sjónrænum vanda. Þetta lítur ekki bara hálf leiðinlega út, þetta dregur einnig úr virkni frystisins og tekur verðmætt geymslupláss.

Það getur virst ansi tímafrekt verkefni að afþíða frystinn en það þarf ekki að vera það  því það er til einföld og skjót aðferð sem krefst þess aðeins að þú eigir álpappír. Linternaute skýrir frá þessu.

Fram kemur að mælt sé með því að frystirinn sé afþíddur á um hálfs árs fresti. En þetta er auðvitað háð því hversu hratt ís og hrím sest aftur í hann. Ef það gerist mjög hratt, þá getur verið nauðsynlegt að afþíða hann oftar.

Þegar þetta er gert, taka margir frystinn bara úr sambandi og láta ísinn bráðna á náttúrulegan hátt en það getur tekið drjúgan tíma. Aðrir ná sér í spaða og skafa ísinn og hrímið af en það skilar ekki sérstaklega góðum árangri og er tímafrekt.

Þess í stað er hægt að prófa álpappírsaðferðina.

Í öllum sínum einfaldleika gengur hún út á að klæða veggi frystisins með álpappír því hann leiðir hita hratt og lætur ísinn bráðna.

Síðan er stór pottur með sjóðandi vatni settur í frystinn. Hurðinni er síðan lokað og beðið í nokkrar mínútur á meðan hitinn dreifist um frystinn. Þegar þú opnar hann aftur er auðvelt að fjarlægja ísinn með spaða. Ef þú lendir í erfiðum blettum sem láta ekki svo auðveldlega undan, þá getur þú notað heita tusku til að vinna á þeim.

Þessi aðferð er einföld og sparar bæði tíma og krafta og er því mjög praktísk lausn fyrir þá sem vilja afþíða frystinn hratt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“
Pressan
Í gær

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið