fbpx
Laugardagur 23.maí 2026
Pressan

Skoðaði „fullorðinssíðu“ – Trúði ekki eigin augum þegar hann sá sjálfan sig þar

Pressan
Laugardaginn 23. maí 2026 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir karlar, og margar konur, hafa litið við á hinum ýmsum „fullorðinssíðum“ (öðru nafni klámsíður) í leit að smá „afþreyingu“. En þegar „Eric“ kíkti á eina slíka síðu gerði hann svakalega uppgötvun.

Á meðal mörg þúsund myndbanda var myndband af honum og kærustunni hans að stunda kynlíf í hótelherbergi. Það hafði verið tekið upp með falinni myndavél.

Það sem átti að vera hugguleg gisting á hóteli í Shenzhen í Kína, endaði sem klukkustundarlöng „kvikmynd“ sem var birt á Internetinu.

Myndbandið sýndi allt frá því að parið gekk inn í herbergið og tók upp úr töskunum þar til það skellti sér upp í rúm til að stunda kynlíf.

Í samtali við BBC játaði Eric að hann hefði sjálfur verið aðdáandi „njósnamyndavéla“ á klámsíðum árum saman. Hann hafi dregist að hráu og óklipptu myndefninu sem honum fannst betra en hefðbundið klám sem honum finnst vera of „uppstillt“.

En það má segja að karma hafi lent á honum eins og bjúgverpill þremur vikum eftir fríið í Kína því þá sá hann að hann var sjálfur stjarnan í klámefni eins og hann var vanur að horfa á.

Þegar hann sýndi kærustunni sinni myndbandið, hélt hún í fyrstu að þetta væri bara lélegt grín hjá honum en síðan áttaði hún sig á alvöru málsins. Mörg þúsund manns höfðu horft á þau stunda kynlíf og nú óttast hún mest að vinir, ættingjar eða vinnufélagar rekist á myndbandið.

Málið er ekkert einsdæmi og má í því samhengi nefna að í Kína er risastór markaður fyrir myndefni tekið upp með földum myndavélum.

Myndavélarnar geta verið eins litlar og strokleður og því auðvelt að koma þeim fyrir. Þær fara oft af stað þegar gestirnir ganga inn í hótelherbergið. Öpp á borð við Telegram eru notuð til að finna kaupendur og greiða þeir um 9.000 krónur á mánuði fyrir aðgang að ólöglegu streymi úr földum myndavélum.

Ástandið er orðið svo slæmt að sumir hótelgestir í Kína taka tjöld með sér, sem þeir tjalda inni í hótelherbergjunum, til að vera vissir um að myndir verði ekki teknar af þeim.

Málið gjörbreytti lífi Eric og kærustunnar. Þau töluðu ekki saman í margar vikur eftir að þau komust að þessu og þau eru með hatta á almannafæri af ótta við að fólk beri kennsl á þau.

Eric er hættur að horfa á klám, tekið upp með földum myndavélum, og fer nú aðeins inn á slíkar síður til að sjá hvort myndbandið „hans“ sé þar að finna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Mun deyja í fangelsi vegna þess sem hann gerði bróður sínum og fjölskyldu hans

Mun deyja í fangelsi vegna þess sem hann gerði bróður sínum og fjölskyldu hans
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vildi prófa ákveðna stillingu í Teslunni sinni – Það endaði ekki vel

Vildi prófa ákveðna stillingu í Teslunni sinni – Það endaði ekki vel
Pressan
Fyrir 4 dögum

Bótasvikari dæmd í fangelsi – Sagðist ekki geta gengið en keppti svo í 10 kílómetra hlaupi

Bótasvikari dæmd í fangelsi – Sagðist ekki geta gengið en keppti svo í 10 kílómetra hlaupi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sonur stofnanda Mango handtekinn vegna dauða föður síns

Sonur stofnanda Mango handtekinn vegna dauða föður síns