
Afraksturinn er sýndur í nýrri heimildarmynd Channel 5, Inside the World’s Mega Prison, sem verður sýnd í Bretlandi í næstu viku. Daily Mail ræddi við Madeley um heimsóknina.
Fangelsið sem um ræðir er engin smásmíði og er þar pláss fyrir um 40 þúsund fanga. Það var reist árið 2022 að frumkvæði Nayib Bukele, forseta El Salvador, sem hefur leitt umfangsmikla herferð gegn glæpagengjum í landinu. Talið er að nú séu um 15 þúsund fangar í fangelsinu, flestir grunaðir eða dæmdir meðlimir glæpagengja.
Madeley lýsir aðstæðunum sem yfirþyrmandi.
„Ekkert, nákvæmlega ekkert, getur undirbúið mann fyrir að sjá 3.000 krúnurakaða menn troðnum saman bak við rimla frá gólfi til lofts,“ sagði hann í kynningu á heimildarmyndinni.
Samkvæmt lýsingum hans eru fangarnir nær eingöngu í nærbuxum, ljósin eru kveikt allan sólarhringinn og þeir verja nær öllum sólarhringnum inni í klefum sínum. Engar fjölskylduheimsóknir eru leyfðar, þeir fá ekki að sækja sér neina menntun, afþreyingu eða önnur endurhæfingarúrræði.

„Þeir sitja bara á kojunum sínum dag eftir dag og ljósin eru kveikt allan sólarhringinn, aldrei dempuð. Allir munu deyja í þessu fangelsi. Þeir eru lifandi dauðir,“ sagði Madeley.
Fangelsið hefur orðið táknmynd harðra aðgerða stjórnvalda í El Salvador gegn glæpagengjum sem árum saman réðu stórum hluta samfélagsins með ofbeldi, fjárkúgun, mannránum og morðum. Fyrir aðgerðir stjórnvalda var morðtíðni í landinu sú hæsta í heimi.
Stjórnvöld í El Salvador segja að ofbeldi glæpagengja hafi kostað um 200 þúsund mannslíf á síðustu þremur áratugum og halda því fram að öryggi almennings hafi batnað verulega eftir að þúsundir grunaðra gengjameðlima voru handteknir.
Mannréttindasamtök hafa gagnrýnt aðstæður í CECOT-fangelsinu og sakað stjórnvöld um alvarleg mannréttindabrot. Madeley viðurkennir sjálfur að það sé engin spurning að brotið sé á mannréttindum þeirra fanga sem þarna dvelja. Hann segist hafa rætt við heimamenn í El Salvador og langflestir séu þeirrar skoðunar að stjórnvöld hefðu ekki átt neinn annan kost.
„Ég fann ekki eina einustu manneskju sem var ekki yfir sig ánægð með að glæpamennirnir sem áður stjórnuðu öllum þáttum daglegs lífs í El Salvador væru nú komnir varanlega á bak við lás og slá,“ segir hann.
Hægt er að sjá stiklu úr myndinni hér að neðan.