
Konan, sem ekki hefur verið nafngreind, gekkst undir svuntuaðgerð í október á síðasta ári. Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum leið henni illa strax eftir aðgerðina og fann fyrir miklum verkjum. Hún missti meðal annars meðvitund og þurfti að leita sér aðstoðar á ný.
Læknar töldu í fyrstu að um hefðbundin einkenni eftir aðgerð væri að ræða. Rannsóknir sýndu síðar að konan væri með sýkingu og henni voru gefin sýklalyf. Heilsu hennar hélt þó áfram að hraka næstu mánuði.
Sjö mánuðum síðar leitaði hún til annarrar læknastofu í Napólí þar sem framkvæmd var ítarleg rannsókn á kvið hennar. Þá kom í ljós að sex tommu skurðskæri höfðu verið skilin eftir inni í henni í upphaflegu aðgerðinni.

Samkvæmt lögregluskýrslu var konunni boðið að snúa aftur á sömu klíník svo hægt væri að fjarlægja skærin, en hún hafnaði því alfarið.
„Ég mun aldrei stíga fæti þarna inn aftur,“ er haft eftir henni í ítölskum fjölmiðlum. Einnig kemur fram að eiginkona skurðlæknisins hafi haft samband og beðist afsökunar.
Konan hefur nú fengið lögfræðiaðstoð og nýtur stuðnings frá Domenico Caliendo-sjóðnum, sem hefur barist fyrir auknu öryggi í heilbrigðiskerfinu eftir dauða tveggja ára drengs sem lést við hjartaígræðslu á Ítalíu.
Lögregla rannsakar nú málið en hefur ekki gefið út opinbera yfirlýsingu. Konan gekkst undir aðgerð í þessari viku þar sem skærin voru fjarlægð.
Svipað mál kom upp í Ástralíu árið 2004 þegar sjö tommu skurðskæri fundust í maga 69 ára konu tæpum átján mánuðum eftir aðgerð. Þá hafði vefur líkamans vaxið yfir skærin og þurfti að fjarlægja hluta af ristli hennar til að ná þeim út.