
Samkvæmt bandarískum fjölmiðlum hefur hin 58 ára gamla Eileen Wang ákveðið að játa sig seka um eitt alvarlegt brot samkvæmt bandarískum lögum um erlenda erindreka.
Saksóknarar segja hana hafa unnið markvisst að hagsmunum kínverska ríkisins á árunum 2020 til 2022, áður en hún var kjörin í bæjarstjórn Arcadia árið 2022.
Wang rak áður fréttavefinn U.S. News Center ásamt fyrrverandi unnusta sínum, Yaoning Sun. Vefurinn var sagður ætlaður kínversk-amerísku samfélagi í Kaliforníu, en yfirvöld segja að þar hafi verið birt efni sem kínverskir embættismenn sendu þeim beint í gegnum dulkóðuð WeChat-skilaboð.
Meðal þess sem Wang er sögð hafa birt voru greinar sem neituðu ásökunum um mannréttindabrot gegn Úígúrum í Xinjiang-héraði í Kína.
Í gögnum dómsins kemur fram að kínverskur embættismaður hafi sent henni tilbúna grein með skilaboðunum: „Það er ekkert þjóðarmorð í Xinjiang.“ Nokkrum mínútum síðar hafi Wang birt greinina á eigin vef og sent tengilinn til baka. Embættismaðurinn þakkaði henni fyrir mjög skjót viðbrögð.
Saksóknarar segja Wang einnig hafa breytt efni eftir fyrirmælum kínverskra stjórnvalda og sent skjáskot sem sýndu hversu margir höfðu lesið greinarnar. Fyrrverandi kærasti Wang hefur þegar hlotið dóm í málinu, en hann var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrr á árinu fyrir sambærileg brot.
Bandaríska dómsmálaráðuneytið segir Wang eiga yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsisdóm. Hún sagði af sér embætti bæjarstjóra sama dag og ákærurnar voru birtar opinberlega.
Yfirvöld í Arcadia, sem er rúmlega fimmtíu þúsund manna samfélag, hafa lagt áherslu á að engir fjármunir borgarinnar eða ákvarðanir sveitarfélagsins hafi tengst málinu.