fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Pressan

Vilja gera Plútó að plánetu á nýjan leik

Pressan
Sunnudaginn 10. maí 2026 09:10

Plútó.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef þú gekkst í skóla áður en nýja árþúsundið gekk í garð, þá lærðirðu eflaust að Plútó væri níunda plánetan í sólkerfinu. En þetta breyttist 2006 þegar Plútó var lækkaður í tign og færður niður í flokk dvergpláneta. En nú er umræða hafin um hvort það færa eigi Plútó aftur í plánetuflokkinn.

Þetta kom fram þegar Jared Isaacman, forstjóri bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA, kom fyrir bandaríska þingnefnd nýlega. Sagðist hann vera talsmaður þess að Plútó verði gerður að plánetu á nýjan leik.

Vísindaritið Nature segir að NASA vinni nú að mati á hvort gera eigi Plútó aftur að plánetu og sé verið að fara yfir ýmis gögn varðandi málið.

Þarf að uppfylla þrjár kröfur

Til að hægt sé að kalla himintungl plánetu þarf það að uppfylla þrjú skilyrði.

Fyrir það fyrsta þarf það að vera á braut um sólina.

Annað skilyrðið er að það þarf að vera nægilega stórt til að eigin þyngd þess hafi gert það næstum hnattlaga.

Þriðja skilyrðið er að það þarf að vera ráðandi afl á braut sinni og að hafa rutt öðrum himintunglum úr vegi á brautinni.

Þriðja skilyrðið uppfyllir Plútó ekki því hann er í Kuiperbeltinu, sem er svæði með mörgum öðrum himintunglum. Hann hefur því ekki getað rutt þeim af braut sinni og það var ástæðan fyrir að hann var lækkaður í tign 2006 og gerður að dvergplánetu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Læknir mælir gegn of mikilli fiskneyslu ef fólk vill halda sér unglegu

Læknir mælir gegn of mikilli fiskneyslu ef fólk vill halda sér unglegu
Pressan
Í gær

Óhugnanleg ný gögn úr dularfulla flugslysinu – Hvað gerðist í stjórnklefanum?

Óhugnanleg ný gögn úr dularfulla flugslysinu – Hvað gerðist í stjórnklefanum?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kynlífsleikur endaði með ósköpum: „Þetta var það sem hann vildi“

Kynlífsleikur endaði með ósköpum: „Þetta var það sem hann vildi“
Pressan
Fyrir 2 dögum

10 óáreiðanlegustu notuðu bílarnir – lúxusinn getur reynst dýrkeyptur

10 óáreiðanlegustu notuðu bílarnir – lúxusinn getur reynst dýrkeyptur