fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
Pressan

Þetta finnst gáfuðu fólki afslappandi en venjulegt fólk þolir þetta ekki

Pressan
Laugardaginn 9. maí 2026 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrátt fyrir að því sé oft stillt þannig upp að það sé kostur að vera mjög gáfaður, að það færi fólki bæði persónulegan og félagslegan ávinning, sem meðalmaðurinn upplifir ekki endilega, þá er ekki alltaf auðvelt að vera mjög gáfaður.

Samuel Kohlenberg, sem er að sögn sérfræðingur á þessu sviði, segir að mjög greint fólk upplifi oft ósanngjarnar væntingar og glími oftar við áskoranir varðandi geðheilsu sína en jafnaldrar þeirra. Þetta fólk hafi tilhneigingu til að vera gagnrýnið á sjálft sig og um leið fullkomnunarsinnar. Þetta skapi meira stress í hversdagslífinu.

Sem betur fer hefur margt af mjög greinda fólkinu þróað með sér venjur og áhugamál sem mynda mótvægi við þessar áskoranir. Þetta er eitt og annað sem mjög greinda fólkinu finnst afslappandi en flestir aðrir þola ekki.

Þetta snýst ekki eingöngu um afslöppun, heldur um að finna innri ró og andlegt jafnvægi.

Meðal þess sem mjög greinda fólkinu finnst afslappandi er eftirtalið:

Að vera alein(n) – Margt mjög gáfað fólk kann vel að meta að vera eitt en einvera getur, miðað við niðurstöður rannsóknar sem var birt í Journal of Personality, aukið sjálfsvitund og bætt skapið.

Þögn – Þögn skapar rými fyrir innri ró og til að ná stjórn á tilfinningunum. Þetta snýst ekki um að láta sér leiðast, heldur um að draga sig í hlé frá stöðugu áreiti. Rannsókn frá 2007 sýndi fram á að þögn ýtir undir sköpunargleði og nýsköpun.

Langar bækur – Samkvæmt því sem kemur fram í Scientific American getur lestur á löngum skáldsögum eða bókmenntaverkum aukið samkennd, íhugun og tilfinningalega stjórn. Aðrir verða kannski óþolinmóðir við lestur en mjög gáfað fólk nýtur þess að kafa djúpt í flókna texta sem vekja það til umhugsunar.

Klassísk tónlist -Klassísk tónlist hjálpar til við að draga úr stressi og bæta einbeitinguna. Fyrir mjög gáfað fólk er klassísk tónlist ekki bara eitthvað í bakgrunninum, heldur aðferð til að skapa innri ró og bæta frammistöðu heilans í annríki hversdagsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þeir sem sofa með svefnherbergisdyrnar lokaðar eiga þetta sameiginlegt

Þeir sem sofa með svefnherbergisdyrnar lokaðar eiga þetta sameiginlegt
Pressan
Í gær

Þúsundir Bandaríkjamanna gætu misst vegabréfið vegna ógreiddra meðlaga

Þúsundir Bandaríkjamanna gætu misst vegabréfið vegna ógreiddra meðlaga
Pressan
Fyrir 2 dögum

Martröð á mæðradegi: Nýjar vendingar í einu umtalaðasta sakamáli Bandaríkjanna

Martröð á mæðradegi: Nýjar vendingar í einu umtalaðasta sakamáli Bandaríkjanna
Pressan
Fyrir 2 dögum

FBI-liðar uggandi yfir meintum hefndaraðgerðum Kash Patels vegna frétta um áfengisdrykkju hans

FBI-liðar uggandi yfir meintum hefndaraðgerðum Kash Patels vegna frétta um áfengisdrykkju hans