fbpx
Miðvikudagur 22.apríl 2026
Pressan

Nærri 500 liðsmenn MS-13 fyrir dóm vegna 29.000 morða

Pressan
Miðvikudaginn 22. apríl 2026 06:30

Þúsundir grunaðra liðsmanna MS-13 eru á bak við lás og slá í El Salvador. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tæplega fimm hundruð meðlimir glæpagengisins MS-13 í El Salvador eru nú fyrir dómi, sakaðir um tugþúsundir alvarlegra brota, þar á meðal morð. Réttarhöldin, sem hófust á mánudag, eru hluti af umfangsmikilli herferð stjórnvalda gegn gengjastarfsemi í landinu.

Samkvæmt ríkissaksóknara sæta alls 486 grunaðir ákæru fyrir um 47.000 brot sem framin voru á árunum 2012 til 2022, þar af um 29.000 manndráp. Í hópnum eru sagðir vera bæði æðstu leiðtogar samtakanna, svæðisstjórar og aðrir lykilaðilar innan gengisins.

Sjá einnig: Sagan á bak við MS-13: Hættulegasta götugengi heims sem hlífir engum

Aðgerðirnar eru hluti af harðri stefnu forsetans Nayib Bukele, sem hefur lýst yfir stríði gegn gengjum í landinu.

Árið 2022 lýsti hann yfir neyðarástandi í kjölfar bylgju ofbeldis þar sem 87 manns voru myrtir á einni helgi. Síðan þá hafa yfir 90 þúsund manns verið handteknir vegna gruns um tengsl við gengjastarfsemi.

Yfirvöld saka MS-13 meðal annars um að hafa reynt að grafa undan ríkisvaldinu með því að koma á fót eigin stjórnkerfi.

Saksóknarar segja næg sönnunargögn liggja fyrir til að krefjast þyngstu refsinga yfir sakborningunum, sem væntanlega felur í sér lífstíðarfangelsi.

Herferð stjórnvalda hefur skilað áþreifanlegum árangri að mati stjórnvalda, með verulegri fækkun afbrota og auknu öryggi almennings.

Bukele hefur haldið því fram að gengin hafi um árabil haft yfirráð yfir stórum hluta landsins og borið ábyrgð á allt að 200.000 morðum á síðustu þremur áratugum.

Aðgerðirnar hafa þó sætt harðri gagnrýni frá mannréttindasamtökum. Samtök á borð við Human Rights Watch og Cristosal í El Salvador, Gvatemala og Hondúras segja alvarleg brot á réttindum fanga hafa átt sér stað. Fangar hafi þannig ekki fengið réttláta málsmeðferð, þeir jafnvel verið pyntaðir og sumir látist í haldi.

Réttarhöldin sjálf eru einnig umdeild, en í umfjöllun breskra fjölmiðla kemur fram að stórir hópar sakborninga séu dæmdir á einu bretti og fylgjast margir þeirra með málsmeðferðinni í gegnum sjónvarpsskjá úr fangelsi. Dómarar eru nafnlausir og refsingar oft samræmdar yfir heila hópa.

MS-13 og keppinautur þess, Barrio 18, hafa um árabil verið talin meðal hættulegustu glæpasamtaka í Mið-Ameríku. Gengin eiga rætur að rekja til samfélaga innflytjenda í Los Angeles en hafa síðan haft djúpstæð áhrif á samfélagið í El Salvador.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur prins sagður ætla að meina Harry bróður sínum að vera viðstaddur krýninguna

Vilhjálmur prins sagður ætla að meina Harry bróður sínum að vera viðstaddur krýninguna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta skaltu alltaf þrífa áður en þú flytur inn í nýtt hús

Þetta skaltu alltaf þrífa áður en þú flytur inn í nýtt hús
Pressan
Fyrir 2 dögum

Trump er ekki ósnertanlegur – Svona er hægt að koma honum úr embætti

Trump er ekki ósnertanlegur – Svona er hægt að koma honum úr embætti
Pressan
Fyrir 2 dögum

Pútín breytir reglunum – Nú geta fleiri verið sendir á vígvöllinn

Pútín breytir reglunum – Nú geta fleiri verið sendir á vígvöllinn