fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

Pressan
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 07:00

Edward Eastland. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forstjóri sumarbúðanna Camp Mystic í Texas, þar sem 27 börn og leiðbeinendur létust í mannskæðu flóði í fyrrasumar, viðurkenndi fyrir dómi á mánudag að starfsfólk hefði brugðist of seint við yfirvofandi hættu.

Hann sagði að hvorki hefðu verið haldnir fundir um veðurviðvaranir né gripið til rýmingar fyrr en flóðvatnið var orðið lífshættulega hátt.

Edward Eastland, sem stýrir búðunum ásamt fjölskyldu sinni, bar vitni í tilfinningaþrungnum réttarhöldum þar sem fjölskyldur látinna barna sátu meðal annars í salnum.

Sjá einnig: Segja græðgi eigenda hafa valdið því að 25 ungar stúlkur létu lífið í sumarbúðum

Þar lýsti hann því hvernig vatnið í Guadalupe-ánni, sem rennur fram hjá sumarbúðunum, hefði hækkað með fordæmalausum hraða aðfaranótt 4. júlí og lokað börn og leiðbeinendur inni í kofum áður en þau skoluðust burt.

Alvarlegir annmarkar

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar,“ sagði Eastland undir lok vitnisburðar síns. Hann viðurkenndi að fleiri hefðu hugsanlega lifað af ef starfsfólk hefði brugðist fyrr við, en hélt því fram að enginn hefði getað séð fyrir hversu alvarlegur atburðurinn yrði.

Í frétt AP kemur fram að málið sé hluti af umfangsmikilli lögfræðilegri deilu milli eigenda Camp Mystic og fjölskyldna fórnarlambanna, sem hafa höfðað mörg skaðabótamál. Fjölskyldurnar hafa einnig farið fram á að skemmdir á svæðinu verði varðveittar sem sönnunargögn.

Vitnisburður Eastlands er sagður varpa nýju ljósi á alvarlega annmarka í öryggisferlum búðanna. Hann viðurkenndi að engin skrifleg og ítarleg rýmingaráætlun vegna flóða hefði verið til staðar. Þá sagði hann að hvorki hann né faðir hans, Richard Eastland, meðeigandi búðanna, hefðu tekið ákvörðun um rýmingu fyrr en um klukkan þrjú um nóttina, þegar mikil hætta steðjaði að.

Einnig kom fram að starfsfólk hefði ekki nýtt hátalarakerfi svæðisins til að kalla börn og leiðbeinendur í öruggara skjól á hærra landi fyrr um nóttina, þrátt fyrir að viðvaranir hefðu borist frá veðurstofu og neyðarkerfum.

Ein stúlka enn ófundin

Flóðin kostuðu alls að minnsta kosti 136 manns lífið á nokkurra kílómetra svæði með fram Guadalupe-ánni. Meðal þeirra voru 25 börn úr Camp Mystic, tveir unglingsleiðbeinendur og Richard Eastland sjálfur, sem lést þegar jeppi hans með börnum innanborðs skolaðist burt.

Eina fórnarlamb sumarbúðanna sem enn hefur ekki fundist er átta ára stúlka, Cile Steward. Móðir hennar, Cici Steward, sagði eftir þinghaldið að ríkið ætti að hafna beiðni Camp Mystic um endurnýjun starfsleyfis.

„Það er augljóst að þau eru ekki fær um að tryggja öryggi barna,“ sagði hún.

Þrátt fyrir harmleikinn hyggjast rekstraraðilar Camp Mystic opna búðirnar á ný eftir innan við tvo mánuði á svæði sem ekki varð fyrir flóðum. Tæplega 900 stúlkur hafa þegar verið skráðar til dvalar þar, samkvæmt upplýsingum frá eigendum.

Edward hefur ekki sjálfur verið ákærður í tengslum við málið en sakamálarannsókn stendur yfir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“
Pressan
Í gær

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð
Pressan
Í gær

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu
Pressan
Í gær

Kviðdómendur grétu við upptöku af síðustu augnablikum sjö ára stúlku

Kviðdómendur grétu við upptöku af síðustu augnablikum sjö ára stúlku
Pressan
Í gær

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans
Pressan
Fyrir 2 dögum

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins