fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Pressan

Reyndu að setja brúðkaup á svið í Disneylandi – Starfsmenn hringdu í lögregluna þegar þeir sáu brúðina

Pressan
Þriðjudaginn 24. júní 2025 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stórfurðulegt og ógnvekjandi mál kom upp í Disney-garðinum í Frakklandi á dögunum. Breskur maður hefur nú verið handtekinn, en hann reyndist vera þekktur barnaníðingur á flótta undan réttvísinni. DailyMail greinir frá þessu undarlega máli.

Málið má rekja til brúðkaups sem átti að fara fram í garðinum og töldu starfsmenn að hér væri hefðbundin gifting á ferðinni. Þeir ráku þó upp stór augu þegar þeir sáu brúðina sem augljóslega var of ung til að vera að ganga í hjónaband. Starfsmenn höfðu því samband við lögreglu og þá kom á daginn að ekki var um raunverulegt brúðkaup að ræða heldur sviðsetningu.

„Viðburðurinn reyndist sviðsettur og gestirnir voru allir leikarar,“ sagði saksóknari í samtali við franska fjölmiðla. „Svo þetta var ekki brúðkaup heldur sviðsetning brúðkaups sem var tekið upp og hafði um 100 aukaleikara. Aðstandendur viðburðarins höfðu leigt garðinn undir því yfirskyni að um raunverulegt brúðkaup væri að ræða.“

Fjórir aðilar voru handteknir á staðnum og færðir í varðhald. Grunur lék á að um einhvers konar svika- eða peningaþvættisaðgerð væri að ræða.

Forsprakkinn, sem jafnframt fór með hlutverk brúðgumans, var í fyrstu fréttum sagður 22 ára Breti. Brúðurin reyndist vera 9 ára stúlka frá Úkraínu og eftir fyrstu skýrslutöku leit ekki út fyrir að hún væri þolandi þvingunar eða ofbeldis. DailyMail greinir frá því í dag að Bretinn sé í raun 39 ára og eftirlýstur í heimalandi sínu fyrir kynferðisbrot gegn ólögráða barni. Hann hefur nú verið ákærður fyrir skjalafals, peningaþvætti, svik og trúnaðarbrot.

Aukaleikararnir voru ferjaðir í garðinn með rútu, en margir töldu að þeir væru að taka þátt í raunverulegu brúðkaupi. Einn leikari lýsti aðstæðum með eftirfarandi hætti:

„Ég sá starfsmenn Disney í uppnámi og svo sá ég í gegnum gluggann lítið barn í brúðarkjól. Kona bar hana í fangi sér og þá áttaði ég mig á því að barnið væri mjög ungt.“

Móðir stúlkunnar mun hafa sagt lögreglunni að hún hafi viljað skipuleggja prinsessudag fyrir dóttur sína. Móðirin hefur nú verið handtekin sem og 24 ára kona frá Lettlandi sem lék hlutverk systur brúðarinnar og 55 ára karlmaður frá Lettlandi sem eins tók þátt í athöfninni.

Sýna átti frá viðburðinum í beinni útsendingu á samfélagsmiðlum.

Stjórnendur Disney-garðarins segjast hafa verið beittir blekkingum, en þökk sé snöggum viðbrögðum starfsmanna hafi verið hægt að stöðva viðburðinn áður en of langt var gengið.

The Guardian. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Brúðkaupið breyttist í blóðbað

Brúðkaupið breyttist í blóðbað
Pressan
Fyrir 2 dögum

Áhrifavaldur hvarf og lögreglu beið ólýsanlegur hryllingur í súpupotti

Áhrifavaldur hvarf og lögreglu beið ólýsanlegur hryllingur í súpupotti
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir segir að þessar fimm einföldu daglegu venjur geti minnkað líkurnar á hjartaáfalli

Læknir segir að þessar fimm einföldu daglegu venjur geti minnkað líkurnar á hjartaáfalli
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna skaltu aldrei biðja um sítrónu í glasið þitt á veitingastað

Þess vegna skaltu aldrei biðja um sítrónu í glasið þitt á veitingastað
Pressan
Fyrir 3 dögum

12 ára stúlka kallar eftir réttlæti vegna morðsins á föður sínum

12 ára stúlka kallar eftir réttlæti vegna morðsins á föður sínum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sydney Sweeney er byrjuð að selja baðvatnið sitt

Sydney Sweeney er byrjuð að selja baðvatnið sitt