fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Pressan

Ertu á leið til Stokkhólms? Þá skaltu gæta þín á þessari gildru á flugvellinum

Pressan
Miðvikudaginn 4. september 2024 07:30

Arlanda flugvöllurinn í Stokkhólmi. Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef þú ætlar flugleiðis til Stokkhólms þá er eitt sem þarf að varast sérstaklega á Arlanda flugvellinum. Það er ef þú ætlar að taka leigubíl þaðan.

Sænska ríkisútvarpið segir að margar kvartanir hafi borist til umsvifamikillar leigubílastöðvar vegna svikahrappa sem þykjast vera á vegum stöðvarinnar og rukka fólk um miklu meira en ferð með löglegum leigubíl kostar.

Samningur er í gildi á milli Swedavia, sem rekur flugvöllinn, og leigubílastöðva um að ferð frá vellinum inni í borgina megi að hámarki kosta 830 sænskar krónur en það svarar til um 10.500 íslenskra króna. Gildir þetta verð fyrir einn til fjóra farþega.

Ferðin tekur um hálfa klukkustund og hafa sumir þurft að greiða 6.000 sænskar krónur fyrir hana en það svarar til tæplega 80.000 íslenskra króna.

„Fólk hefur staðið hér í móttökunni og grátið eftir að hafa borgað 5.000-6.000 krónur,“ sagði Pernilla Samuelsson, forstjóri Taxi Stockholm, í samtali við Sænska ríkisútvarpið.

Fólkið, sem hefur kvartað, taldi allt að það væri í leigubíl frá Taxi Stockholm en það er ein stærsta leigubílastöð landsins.

Sjóræningjaleigubílarnir skarta skilti og nafni sem líkist merki og nafni Taxi Stockhom og því áttar fólk sig seint á að það situr í sjóræningjaleigubíl.

Taxi Stockholm hefur verið með herferð í gangi á Arlanda flugvellinum til vekja athygli fólks á því að númerið 15 00 00 eigi að vera í lógói leigubíla, þá sé öruggt að þeir séu frá Taxi Stockholm.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Fundu faldar myndavélar í Airbnb-íbúðinni – Voru mynduð þegar þau stunduðu kynlíf

Fundu faldar myndavélar í Airbnb-íbúðinni – Voru mynduð þegar þau stunduðu kynlíf
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fyrrum raunveruleikastjarna ákærð fyrir að hafa myrt og sundurlimað maka sinn

Fyrrum raunveruleikastjarna ákærð fyrir að hafa myrt og sundurlimað maka sinn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Svona styrkir þú þarmaflóruna með einfaldri breytingu á mataræðinu

Svona styrkir þú þarmaflóruna með einfaldri breytingu á mataræðinu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?
Pressan
Fyrir 5 dögum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum