Lögreglumaðurinn stýrði rannsókn á tölvu Hunter Biden.
Hinn grunaði er frá Texas og hefur nú verið kærður fyrir að hafa haft í hótunum við lögreglumanninn. Hann hringdi í lögreglumanninn þann 11. júní. Lögreglumaðurinn lagði strax á. Skömmu síðar hringdi maðurinn aftur og las skilaboð inn á símsvarann. Það var þá sem hann hafði í hótunum við lögreglumanninn.
Þennan sama dag var Hunter Biden sakfelldur fyrir brot gegn vopnalöggjöfinni með því að skýra ekki satt og rétt frá fíkniefnaneyslu sinni þegar hann keypti sér skammbyssu.
Saksóknarar segja að maðurinn hafi sakað lögreglumanninn um að hilma yfir meint afbrot Hunter Biden.
Margir stjórnmálamenn úr röðum Repúblikana hafa sakað Hunter Biden og föður hans, Joe Biden, að hafa hagnast á pólitískum ákvörðunum sem voru teknar í stjórnartíð Barack Obama en Joe Biden var varaforseti hans. Engar sannanir hafa fundist fyrir þessu og feðgarnir neita þessum ásökunum.
Þegar maðurinn las skilaboðin inn á símsvarann sagði hann að ef Donald Trump sigri í forsetakosningunum verði lögreglumaðurinn lokaður inni í fangelsi. „Þú getur líka stolið öðrum kosningasigri en þá náum við í vopnin okkar og finnum ykkur og slátrum ykkur eins og þeim svikahundum sem þið eruð,“ sagði hann einnig.