fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Pressan

Vendingar í máli móðgaða afans – Barnabörnin sitja eftir stórskuldug

Pressan
Þriðjudaginn 21. maí 2024 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fimm sonardætrum hins breska Frederick Ward hefur verið gert að greiða málskostnað upp á 220 þúsund pund, tæpar 39 milljónir króna, eftir að þær fóru í erfðamál. Ward lést árið 2020 og skildi eftir sig dánarbú að andvirði 500 þúsund pund.

Ward átti þrjú börn og fengu tvö eftirlifandi börn hans nær allar eigur hans. Þriðja barn hans, Fred yngri, lést árið 2015 og átti arfurinn því að óbreyttu að renna til barna hans. En Fred eldri gerði uppfærða erfðaskrá árið 2018 þar sem fram kom að systurnar fimm fengju hvor um sig 50 pund.

Var þetta táknræn upphæð, að hans sögn, þar sem hann var vonsvikinn og móðgaður yfir því að engin systranna heimsótti hann síðustu æviár hans.

Systurnar fimm fóru með erfðamálið fyrir dómstól í Bretlandi, en töpuðu. Nú liggur fyrir að systurnar þurfa að greiða allan málskostnað, 220 þúsund pund eða tæpar 40 milljónir króna.

Systurnar fimm, Carol Gowing, Angela St Marseille, Amanda Higginbotham, Christine Ward og Janet Pett, höfðuðu málið á þeim forsendum að þær hefðu átt að erfa þriðjungshlut föður síns af andvirði dánarbúsins.

Héldu þær því fram að erfðaskráin væri ógild vegna þess að systkinin sem fengu langstærstan hluta arfsins, Terry og Susan, hefðu haft „ótilhlýðileg áhrif“ á Ward. Erfðaskráin hafi einnig verið gerð á tíma sem Ward var orðinn veikur maður og hræddur við Terry.

Sjá einnig: Moldríkur og móðgaður afi arfleiddi barnabörnin að smáaurum – Dómarinn sagðist skilja ástæður gamlingjans

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar
Pressan
Fyrir 6 dögum

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar
Pressan
Fyrir 1 viku

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár
Pressan
Fyrir 1 viku

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja
Pressan
Fyrir 1 viku

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“
Pressan
Fyrir 1 viku

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband
Pressan
Fyrir 1 viku

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum
Pressan
Fyrir 1 viku

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?