fbpx
Fimmtudagur 03.júlí 2025
Pressan

Risastór loftsteinn gæti skollið á jörðinni 2029 – Við vitum það ekki með vissu fyrr en 2027

Pressan
Laugardaginn 5. október 2024 20:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Niðurstöður nýrra reiknilíkana benda til þess að ekki sé hægt að útiloka að loftsteinninn Apophis lendi í árekstri við jörðina 2029. Samkvæmt niðurstöðunum gæti annar loftsteinn „ýtt“ honum til þannig að braut hans skarist við braut jarðarinnar.

Líkurnar eru ekki miklar á að svona fari, sem betur fer því Apophis er svo stór að hann gæti gjöreytt stórborg, eða aðeins einn á móti milljarði.

En það verður ekki fyrr en 2027 sem við vitum með vissu hvort af árekstri verður.

Apophis er um 340 metrar í þvermál eða svipað stór og Eiffel turninn. Loftsteinn af þessari stærð er ekki nógu stór til að geta gert út af við líf á plánetu en hann gæti gjöreytt stórborg og árekstur hans við jörðina myndi hafa áhrif á loftslagið um alla jörðina.

Apophis uppgötvaðist 2004. Þá lá fljótlega fyrir að hann muni fara mjög nærri jörðinni þann 13. apríl 2029 og að hann gæti jafnvel lent í árekstri við hann þennan dag.

Frekari rannsóknir og útreikningar sýndu fram á að hann myndi fara fram hjá okkur í tæplega 32.000 km fjarlægð sem er tíundi hluti fjarlægðar tunglsins frá jörðinni. Þetta er nógu nálægt til að loftsteinninn gæti hæft gervihnetti.

Braut stórra loftsteina á borð við Apophis getur breyst vegna áhrifa minni loftsteina. Vísindamenn hafa varað við því að slíkt geti gerst með Apophis á næstu fimm árum og breytt braut hans þannig að hann lendi í árekstri við jörðina.

Útreikningar, sem voru gerðir með nýju reiknilíkani, sýna að ekki er útilokað að lítill loftsteinn muni breyta braut Apophis aðeins en eins og fyrr sagði eru líkurnar aðeins einn á móti milljarði.

Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu The Planetary Science Journal.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Mörg þúsund Norðmenn fengu skilaboð fyrir mistök um milljónavinning í Lottó

Mörg þúsund Norðmenn fengu skilaboð fyrir mistök um milljónavinning í Lottó
Pressan
Fyrir 2 dögum

Flugfreyja segir að flugáhafnir stundi kynlíf í flugstjórnarklefanum – „Vélin er á sjálfstýringu“

Flugfreyja segir að flugáhafnir stundi kynlíf í flugstjórnarklefanum – „Vélin er á sjálfstýringu“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Borðaðu spergilkál og hreinsaðu heilann

Borðaðu spergilkál og hreinsaðu heilann
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum
Pressan
Fyrir 4 dögum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þóttist vera sádiarabískur prins í 30 ár – Beikon varð honum að falli

Þóttist vera sádiarabískur prins í 30 ár – Beikon varð honum að falli