HMD Global, sem framleiðir nútímaútgáfur af Nokia-símum, hefur tekið höndum saman við leikfangaframleiðandann Mattel, sem á réttin að Barbie, um að setja þennan nýja bleika síma á markað. Unga kynslóðin er markhópurinn.
Ekstra Bladet segir að síminn muni kosta sem svarar til um 17.000 íslenskra króna en fyrir þá upphæð fær fólk allt það sem hægt er að ætlast til að farsími geti, það er að segja farsími sem var framleiddur 2003.
Það eru engin öpp, myndavélin er léleg á nútímamælikvarða, það er hægt að senda sms og auðvitað hringja.
Þetta er sem sagt gamaldags sími og er hann eiginlega uppgjör við snjallsímana og sífellt meiri skjátíma fólks.
HMD segir að síminn sé hugsaður sem „stafræn afeitrun“ og geti hugsanlega svarað því hvort „líf í plasti“ sé svo „frábært“.