Á dögunum gekk hinn 69 ára gamli John Michael Irmer inn á lögreglustöð í Portland í Oregon-fylki í heldur óvenjulegum erindagjörðum. Hann játaði á sig hrottalegan glæp sem hafði verið óleystur í 44 ár.
Irmer játaði fyrir undrandi lögreglumönnum að hann bæri ábyrgð á hrottalegri nauðgun og morði á hinni 24 ára gömlu Susan Marcia Rose árið 1979.
Irmer sagðist hafa hitt Susan á skautasvelli í Boston í kringum Hrekkjavöku árið 1979 og þau náð vel saman. Að endingu gengu þau saman á brott og Irmer kvaðst hafa leitt Susan inn í heimili við Beacon stræti, sem var mannlaust vegna framkvæmda. Þar hafi hann slegið Susan með hamri í höfuðið. nauðgað henni og skilið hana eftir í blóði sínu. Daginn eftir hafi hann svo flúið til New York. Susan höfuðkúpubrotnaði og hlaut áverka á heila eftir árásina og lést af sárum sínum.
Morðið vakti talsverða athygli á sínum tíma og fór svo að annar maður var handtekinn og ákærður fyrir glæpinn. Sá var hins vegar sýknaður eftir umfangsmikil réttarhöld árið 1981.
Eins og gefur að skilja hóf lögregla þegar rannsókn á málinu og þannig vildi til að í geymslum lögreglu voru enn til sýni af erfðaefni hins meinta morðingja. Þessi sýni voru þegar borin saman við sýni frá Irmer og reyndust þau vera úr sama manninum.
Irmer þegar verið ákærður fyrir glæp sinn og situr hann nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Ráðgert er að hann muni svara til saka þann 17. október næstkomandi.
Það er þó ekki svo að öldungurinn hafi verið með hreina samvisku. CBS greinir frá því að Irmer hafi setið inni í þrjá áratugi fyrir morð í Kaliforníuríki. Hann hafi lokið afplánunin fyrir um áratug síðan og getað um frjálst höfuðið strokið allt þar til hann gekk inn á lögreglustöðina í Portland og játaði á sig hinn óleysta glæp.
Þá hefur komið fram að þetta hafi ekki verið eina morðið sem Irmer játaði á sig. Ekki hefur enn verið gefið upp um hvaða önnur mál er að ræða en þau eru sögð í rannsókn.
Irmer hefur ekki látið uppi um hvað varð til þess að hann ákvað að gefa sig fram. Samvi