fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Pressan

Orka á við 25 milljarða kjarnorkusprengja hefur safnast upp á 50 árum – Ástæðan er hnattræn hlýnun

Pressan
Laugardaginn 24. júní 2023 11:00

Orka á við 25 milljarða kjarnorkusprengja! Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frá 1971 til 2020 safnaðist orka, sem jafngildir orkunni í 25 milljörðum kjarnorkusprengja, fyrir vegna hnattrænnar hlýnunar.

Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar að sögn Live Science. Rannsóknin var birt í vísindaritinu Earth System Science Data í apríl.

Í henni kemst alþjóðlegur hópur vísindamanna að þeirri niðurstöðu að frá 1971 til 2020 hafi um 380 zettajúl, eitt zettajúl svarar til um 1.000 milljarða milljarða júla, safnast fyrir vegna hnattrænnar hlýnunar.

Í grein, sem Andrew King og Steven Sherwood loftslagsvísindamenn í Ástralíu, birtu í The Conversation reiknuðu þeir út að 380 zettajúl svari til 25 milljarða faldrar orkunnar sem losnaði úr læðingi þegar „Little Boy“ kjarnorkusprengjunni var varpað á Hiroshima.

En það er mjög athyglisvert í þessu samhengi að orkan sem safnaðist í andrúmsloftið á þessu tímabili er líklega aðeins um 60% heildarlosunar gróðurhúsalofttegunda á þessu sama tímabili. Af þeim sökum er talan líklega mun hærri skrifa King og Sherwood.

En þetta mikla orkumagn er einnig ákveðin ráðgáta því miðað við þessa losun hefði hitastigið á jörðinni átt að hækka mun meira en það hefur gert síðan iðnvæðingin hófst. Hvert fór öll þessi orka?

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar þá hafa heimshöfin dregið 89% af þessari miklu orku í sig og land 6%. 4% hafa brætt freðhvolfið, sem er sá hluti loftslagskerfisins sem telur snjó, hafís, ferskvatnsís, ísjaka, jökla, íshellur og sífrera. Aðeins 1% hefur safnast fyrir í andrúmsloftinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona tryggir þú að taskan þín komi alltaf fyrst á farangursfæribandið

Svona tryggir þú að taskan þín komi alltaf fyrst á farangursfæribandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fundu faldar myndavélar í Airbnb-íbúðinni – Voru mynduð þegar þau stunduðu kynlíf

Fundu faldar myndavélar í Airbnb-íbúðinni – Voru mynduð þegar þau stunduðu kynlíf
Pressan
Fyrir 2 dögum

Milljarðaverðmæti í gulli eru geymd undir New York – Nú þurfa eigendurnir kannski að flytja það heim

Milljarðaverðmæti í gulli eru geymd undir New York – Nú þurfa eigendurnir kannski að flytja það heim
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kona lést eftir að hún festist í fatasöfnunargámi

Kona lést eftir að hún festist í fatasöfnunargámi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Borðaðu spergilkál og hreinsaðu heilann

Borðaðu spergilkál og hreinsaðu heilann
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hvort er betra að ganga eða hlaupa í rigningu til að verða ekki eins blautur?

Hvort er betra að ganga eða hlaupa í rigningu til að verða ekki eins blautur?
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?