fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Óttast hungursneyð í Sómalíu á næstu mánuðum

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 11. september 2022 12:00

Frá Sómalíu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mjög líklegt þykir að til hungursneyðar komi á tveimur svæðum í Sómalíu síðar á árinu vegna miskunnarlausra þurrka og átaka. Staðan er svo slæm að mati Martin Griffiths, yfirmanns hjá neyðarhjálp SÞ, að hann telur að tíminn sé að renna út til að bjarga mannslífum.

The Guardian segir að Griffiths hafi sagt að nýjasta greining SÞ á stöðu mála sýni að „beinar vísbendingar“ séu um að til hungursneyðar komi í Baidoa og Burhakaba héruðunum einhvern tímann á tímabilinu frá október til desember.

Á ráðstefnu í Mogadishu sagði hann að hungursneyð sé við þröskuldinn og heimsbyggðin hafi nú fengið lokaaðvörun. Líklegt er talið að hungursneyð ríki að minnsta kosti fram í mars.

Fjögur síðustu regntímabil hafa brugðist og af þeim sökum hafa mörg hundruð þúsund manns hrakist að heiman. Það hefur valdið auknum þrýstingi á veikburða innviði þessa stríðshrjáða lands.

Griffiths sagði að það sem er í uppsiglingu líkist hungursneyðinni 2010-2011 sem varð tæplega 260.000 manns að bana, helmingur þeirra var börn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Uppgötvuðu ný heilsufarsáhrif haframjöls

Uppgötvuðu ný heilsufarsáhrif haframjöls
Pressan
Í gær

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður
Pressan
Í gær

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala