fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Pressan

Tölvuþrjótar hökkuðu beina útsendingu íranska ríkissjónvarpsins – Settu skotskífu á höfuð Ayatollans

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 10. október 2022 21:00

Ætli klerkarnir séu ánægðir með þetta? Skjáskot/BBC

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íranskir sjónvarpsáhorfendur munu væntanlega ekki gleyma útsendingu ríkissjónvarpsins á laugardagskvöldið. Tölvuþrjótar komust inn í útsendinguna og settu inn mynd af Ali Khamenei, leiðtoga landsins, með skotskífu á höfðinu.

BBC skýrir frá þessu og birtir upptöku af þessu.

Umræðuþáttur var í sjónvarpssal þegar aðili, með hvíta grímu, birtist á skjánum og síðan mynd af Ali Khamenei með skotskífu á höfðinu. Einnig birtust myndir af þremur konum sem hafa látist í mótmælum í landinu að undanförnu.

Með þessu fylgdi texti þar sem stóð meðal annars: „Gakktu til liðs við okkur og vöknum“ og „ungt blóð okkar drýpur af hrömmum þínum“.

Hópurinn sem stóð á bak við þetta kallar sig Réttlæti Alis.

Mikil mótmæli hafa verið í Íran síðustu vikur í kjölfar þess að Jina Mahsa Amini, 22 ára, lést þann 16. september þegar hún var í haldi siðgæðislögreglunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Nú þarftu ekki lengur að þefa af handklæðinu – Hér er sannleikurinn um hversu oft á að þvo það

Nú þarftu ekki lengur að þefa af handklæðinu – Hér er sannleikurinn um hversu oft á að þvo það
Pressan
Í gær

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Shoigu sagður ógn við Pútín

Shoigu sagður ógn við Pútín
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir mælir gegn of mikilli fiskneyslu ef fólk vill halda sér unglegu

Læknir mælir gegn of mikilli fiskneyslu ef fólk vill halda sér unglegu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Óhugnanleg ný gögn úr dularfulla flugslysinu – Hvað gerðist í stjórnklefanum?

Óhugnanleg ný gögn úr dularfulla flugslysinu – Hvað gerðist í stjórnklefanum?