Hverri konu verða boðnar sem svarar til 1,7 milljóna íslenskra króna í bætur. The Guardian skýrir frá þessu.
Starfsmenn félagsmálayfirvalda hótuðu konunum, blekktu þær eða greiddu þeim mútur fyrir að fara í ófrjósemisaðgerð. Ekki er vitað með vissu hversu margar þær voru en aðgerðarsinnar telja að þær hafi verið nokkur hundruð.
Hætt var að greiða konum fyrir ófrjósemisaðgerðir þegar stjórn kommúnista hrökklaðist frá völdum 1989. Eftir það voru konur blekktar til að skrifa undir samþykki fyrir slíkum aðgerðum áður en þær gengust undir keisaraskurð og stundum var þeim ekki sagt að þær hefðu verið gerðar ófrjóar í kjölfar barnsburðar. Öðrum var sagt að nauðsynlegt hefði verið að gera aðgerð á þeim til að bjarga lífi þeirra.