fbpx
Þriðjudagur 26.maí 2026
433Sport

Íslendingaliðið missir lykilmann til andstæðinga sinna

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 25. maí 2026 21:00

Tómas Bent fagnar marki með Hearts. Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rangers hefur náð samkomulagi við Hearts um kaup á framherjanum Lawrence Shankland, samkvæmt BBC.

Shankland er 30 ára gamall og fyrirliði Hearts. Það er því áfall fyrir liðið að missa hann.

Framherjinn hefur skorað 88 mörk í 171 leik fyrir Hearts síðan hann kom til félagsins árið 2022 og hefur verið einn markahæsti leikmaður skosku úrvalsdeildarinnar undanfarin ár.

Shankland hefur einnig skorað fjögur mörk í 18 landsleikjum fyrir Skotland og er í HM-hópi þeirra í sumar.

Hearts var grátlega nálægt því að verða Skotlandsmeistari í ár. Liðið leiddi lengi vel í deildinni en tapaði í hreinum úrslitaleik gegn Celtic í lokaumferðinni.

Tómas Bent Magnússon var lykilmaður í liði Hearts á leiktíðinni, allt þar til hann meiddist á vormánuðum.

Rangers endaði í þriðja sæti, Evrópudeildarsæti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Arteta heiðarlegur – „Já, ég efaðist“

Arteta heiðarlegur – „Já, ég efaðist“
433Sport
Í gær

Enska úrvalsdeildin: West Ham féll þrátt fyrir sigur – Liverpool í Meistaradeildina

Enska úrvalsdeildin: West Ham féll þrátt fyrir sigur – Liverpool í Meistaradeildina
433Sport
Í gær

Tómas svo gott sem bugaður vegna gengisins – „Var smá að vonast til þess að þeir myndu enda þjáningar mínar“

Tómas svo gott sem bugaður vegna gengisins – „Var smá að vonast til þess að þeir myndu enda þjáningar mínar“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Björn sat furðu lostinn fyrir framan sjónvarpið á dögunum – „Það er svo fáránlegt, hvernig getur það gerst“

Björn sat furðu lostinn fyrir framan sjónvarpið á dögunum – „Það er svo fáránlegt, hvernig getur það gerst“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Telja upphæðina allt of lága – „Maður eiginlega skammast sín“

Telja upphæðina allt of lága – „Maður eiginlega skammast sín“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Robbie Keane segir upp störfum

Robbie Keane segir upp störfum
433Sport
Fyrir 3 dögum

Tómas með eldræðu í beinni eftir atburði vikunnar – „Þetta er svo ógeðslega heimskulegt“

Tómas með eldræðu í beinni eftir atburði vikunnar – „Þetta er svo ógeðslega heimskulegt“
433Sport
Fyrir 3 dögum

Liverpool vill fá tvo fyrir einn

Liverpool vill fá tvo fyrir einn