
Samkvæmt erlendum miðlum hefur ferðamönnum fækkað um allt að 30 prósent og hótelbókanir dregist saman um 40 prósent á síðustu mánuðum.
Kýpur hefur lengi verið meðal vinsælustu sumarleyfisáfangastaða Breta og heimsækja um 1,3 milljónir Breta eyjuna árlega. Nú virðist hins vegar ótti ferðamanna við óstöðugleika á svæðinu hafa haft mikil áhrif á greinina, að því er fram kemur í umfjöllun breskra fjölmiðla.
Áhyggjur jukust verulega í mars síðastliðnum þegar íranskur dróni hæfði bresku herstöðina RAF Akrotiri á eyjunni. Þótt yfirvöld hafi sagt skemmdirnar hafa verið óverulegar virðist árásin hafa haft töluverð áhrif á ímynd landsins sem öruggs ferðamannastaðar.
Kýpur er staðsett austast í Miðjarðarhafi, skammt frá ströndum Líbanons og Sýrlands, og hefur nálægðin við átakasvæðin orðið til þess að margir ferðamenn forðast að bóka ferðir þangað.
Samkvæmt Tom Antoniou, sem selur skemmtisiglingar í borginni Paphos, hafa bókanir í siglingar dregist saman um helming frá því átökin hófust. Þá hafa áður fjölmennir ferðamannastaðir á borð við Larnaca, Limassol og Protaras verið óvenju tómlegir síðustu vikur.
Í frétt Telegraph kemur fram að á sumum vinsælum hótelum séu svo fáir gestir að sundlaugar og sameiginleg svæði séu nánast mannlaus. Veitingastaðir, barir og verslanir sem áður byggðu afkomu sína á ferðamönnum glíma nú við mikinn samdrátt.
Angelides Christos, framkvæmdastjóri Samtaka hótela á Kýpur, segir að staðan hafi aðeins batnað síðustu vikur en tekjutapið sé enn mikið.
„Flæðið hefur aukist á ný, en það dugar ekki til að bæta upp það tap sem varð vegna afbókana og þeirra vikna sem glötuðust,“ sagði hann í samtali við Cyprus Mail.
Ferðaþjónustan varð sérstaklega fyrir áfalli eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran í lok febrúar. Þegar Íran svaraði með gagnárásum nokkrum dögum síðar jókst ótti ferðamanna enn frekar og fjöldi afbókana rauk upp.
Ferðaskrifstofur bjóða nú vikudvöl á eyjunni á mun lægra verði en áður, meðal annars til staða á borð við Paphos, Protaras og Ayia Napa. Þrátt fyrir lægra verð virðist þó áhugi ferðamanna enn takmarkaður á meðan óvissa ríkir um þróun mála í Miðausturlöndum.