fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
Pressan

Ný rannsókn – Matseld getur tengst minni líkum á að fá elliglöp

Pressan
Sunnudaginn 24. maí 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heilinn verður fyrir áhrifum af því sem við gerum daglega. Verkefni, sem þarfnast skipulagningar og minnis, geta átt sinn þátt í að halda heilanum gangandi.

Þetta á sérstaklega við um verkefni þar sem þarf að hugsa nokkur skref fram í tímann.

Hreyfing gegnir einnig mikilvægu hlutverki. Í rannsókn, sem var birt í JAMA Network Open, kemur fram að sú hreyfing, sem við fáum í lífinu, getur tengst minni líkum á að fá elliglöp.

Mataræði skiptir einnig máli miðað við rannsókn, sem var birt í JAMA Neurology, en í henni kemur fram að það sé gott fyrir heilann ef við borðum lítið af ofurunnum matvælum.

Daglegar rútínur geta þvískipt sköpum fyrir bæði líkamlegt og andlegt heilbrigði. Að geta séð um sig í hinu daglega lífi skapar skýra ramma og getur stutt við starfsemi heilans.

Að vera virkur félagslega getur einnig skipt máli, að vera með öðru fólki og deila upplifunum með því getur haft jákvæð áhrif á vellíðan okkar.

En það er rétt að hafa í huga að rannsóknir á þessu sviði geta ekki sannað orsakir og afleiðingar.

Í stórri rannsókn, sem var birt í Journal of Epidemiol Community Health, voru daglegar venjur eldra fólks rannsakaðar og var fylgst með fólkinu í sex ár. Tæplega 11.000 Japanir tóku þátt í rannsókninni.

Niðurstöðurnar sýndu skýr tengsl á milli þess að elda mat heima hjá sér og minni hættu á að fá elliglöp. Bara það að elda mat einu sinni í viku dró úr líkunum á að fá elliglöp.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Varpar sprengju í nýrri bók um bresku konungsfjölskylduna – „Ofsafengin reiðiköst“

Varpar sprengju í nýrri bók um bresku konungsfjölskylduna – „Ofsafengin reiðiköst“
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Hvort er betra að geyma mat í plast- eða gleríláti?

Hvort er betra að geyma mat í plast- eða gleríláti?
Pressan
Í gær

Sérfræðingur spáir blóðbaði fyrir Trump – Gæti orðið versta útkoman í 68 ár

Sérfræðingur spáir blóðbaði fyrir Trump – Gæti orðið versta útkoman í 68 ár
Pressan
Í gær

Þessar matvörur ætti fólk að borða daglega að sögn sérfræðinga

Þessar matvörur ætti fólk að borða daglega að sögn sérfræðinga
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lýsir enn yfir sakleysi eftir að hún banaði kærasta sínum og vini hans – Heimildarmynd vekur hörð viðbrögð

Lýsir enn yfir sakleysi eftir að hún banaði kærasta sínum og vini hans – Heimildarmynd vekur hörð viðbrögð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Móðir dæmd í að lágmarki 20 ára fangelsi eftir ólýsanlegan harmleik

Móðir dæmd í að lágmarki 20 ára fangelsi eftir ólýsanlegan harmleik
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sérfræðingar vara við geitungasumri: Bú finnast á ótrúlegustu stöðum

Sérfræðingar vara við geitungasumri: Bú finnast á ótrúlegustu stöðum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Bandaríkin íhuga ákæru gegn Raúl Castro vegna atviks árið 1996

Bandaríkin íhuga ákæru gegn Raúl Castro vegna atviks árið 1996