fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Útskýra hvers vegna Star Wars sé á fallanda fæti

Fókus
Mánudaginn 25. maí 2026 20:00

Harrison Ford, Carrie Fisher og Mark Hamill í hlutverkum sínum í fysrtu Star Wars myndunum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir helgi var frumsýnd nýjasta kvikmyndin í Star Wars sagnabálknum eða Stjörnustríð eins og það hefur verið kallað á íslensku. Myndin sem ber titilinn Star Wars: The Mandalorian and Grogu hefur fengið misjafna dóma. Sumir hafa verið ánægðir með hana en aðrir ekki. Búist var fyrirfram við að miðasala á myndina vestan hafs færi hægar af stað en nokkru sinni síðan fyrsta Star Wars myndin var frumsýnd árið 1977. Áhugi á nýjum Star Wars kvikmyndum og sjónvarpsþáttum er sagður hafa farið dvínandi undanfarin ár og færð hafa verið rök fyrir því að þessi sagnabálkur sem hefur notið svo mikilla vinsælda um allan heim, en alls hafa komið út 13 kvikmyndir og nokkur fjöldi sjónvarpsþáttaráða undir merkjum Star Wars, sé á fallanda fæti og á rangri braut.

Fjallað er um þetta á menningarvef breska ríkisútvarpsins, BBC.

Þar er minnt á þegar þriðji þríleikurinn af þremur, í röð þeirra kvikmynda í bálkinum sem eru allar hluti af einni sögu og voru frumsýndar á samtals 42 ára löngu tímabili, með þó nokkrum hléum, var frumsýndur árin 2015, 2017 og 2019 hafi aðsókn á síðustu myndina í þríleiknum verið um helmingur af aðsókninni á þá fyrstu. Þetta hafi verið til marks um þá miklu óánægju sem hafi verið til staðar, meðal áhorfenda, með þennan þríleik. Sömuleiðis hafi aðsókn á myndina Solo: A Star Wars Story sem frumsýnd hafi verið 2018 valdið framleiðendunum verulegum vonbrigðum. Miðasalan á heimsvísu hafi aðeins verið um 40 prósent af því sem síðasta myndin í áðurnefndum þríleik skilaði ári síðar og sú aðsókn hafi einnig valdið vonbrigðum.

Bið

Eftir þessi vonbrigði varð töluverð bið á því að ný Star Wars mynd liti dagsins ljós og nýja myndin er sú fyrsta síðan þá.

Eftir að Disney eignaðist Star Wars með kaupum á framleiðslufyrirtæki skapara sagnabálksins George Lucas var ákveðið að ráðast í framleiðslu sjónvarpsþáttaráða. Sú fyrsta, The Mandolarian, sem framleidd var á árunum 2019-2024 fékk góða dóma en sama er ekki hægt að segja um flestar þær þáttaraðir sem fylgt hafa í kjölfarið og þær hafa allar orðið skammlífar.

Bent hefur verið á að það sé ekki líklegt til að auka aðsókn að nýju myndinni að í raun sé erfitt að skilja söguþráðinn ef maður hefur ekki séð The Mandolarian þættina. Söguþræðir í nýrri myndum og þáttum í Star Wars bálknum séu orðnir svo viðamiklir og nátengdir að erfitt geti verið að njóta þeirra ef maður hafi aðeins hóflegan áhuga en sé ekki meðal hörðustu aðdáenda.

Undantekning frá þessu séu þættirnir Andor en ekki hafi verið nauðsynlegt að þekkja hvern krók og kima í söguheimi Star Wars til að njóta þeirra.

Einnig hafa áhorfendur gagnrýnt nýja tækni sem nýtt hefur verið við gerð sjónvarpsþáttanna síðan 2019 en hún gengur í meginatriðum út á að leikmyndin samanstendur af myndum á miklum fjölda LED-skjáa. Hefur þessi tækni verið sögð ekki hafa góð áhrif á útlit þátttanna.

Eins og áður segir eru ekki miklar vonir bundar við nýju kvikmyndina The Mandalorian & Grogu en þeim mun meiri við næstu mynd í Star Wars bálknum, Starfighter, en í aðalhlutverki verður stjórstjarnan Ryan Gosling en myndin verður frumsýnd á næsta ári. Á sagan í myndinni að gerast á tíma sem ekki hafi verið áður verið viðfangsefni í neinni Star Wars mynd eða þætti og því ekki vera tengdur söguþræði fyrri mynda og þátta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 1 viku

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur