
Lögreglan í Derby-skíri hefur birt tilkynningu um ungan mann, þess efnis að hann sé í banni frá öllum verslunum Tesco-keðjunnar í borginni Derby. Ástæðan er þjófnaður úr verslunum og varsla á krakki (krakk-kókaín).
Tilkynningin hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum vegna þess að brotamaðurinn þykir líkjast mjög söngvaranum vinsæla, Ed Sheeran.
Margar skondnar athugasemdir hafa birst um þetta á samfélagsmiðlum, til dæmis: „Er þetta Temu-útgáfan af Ed Sheeran?“
Og þetta: „Stal hann fiðlu frá írskum bar?“
Alls hafa um 2.500 athugasemdir frá grínaktugum netverjum birst undir tilkynningu um manninn, en hann heitir Baily Esomonde.
Fyrir utan bannið frá Tesco hvílir sú kvöð á manninum að hann verður að yfirgefa hvaða verslun sem er ef starfsfólk krefst þess.
Maðurinn hefur játað sök hvað varðar ákærur gegn honum, fyrir þjófnað og vörslu fíkniefna.
Sjá nánar á Mirror.