fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Pressan

Bretar búa sig undir mikinn samdrátt í afhendingu bóluefna

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 19. mars 2021 06:58

„Öfugt bóluefni“ gæti unnið á sjálfsofnæmissjúkdómum. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bretum hefur gengið vel að bólusetja þjóðina gegn kórónuveirunni enda hafa þeir haft úr miklu magni bóluefna að moða. En nú stefnir í að hægjast muni á ferlinu frá og með 29. mars. Samkvæmt fréttum breskra fjölmiðla þá munu framleiðendur bóluefnanna ekki geta afhent eins mikið magn af þeim og áður.

Þetta er sama vandamálið og ESB hefur staðið frammi fyrir. Í bréfi sem bresk heilbrigðisyfirvöld sendu til starfsstöðva sinna um allt land kemur fram að reikna megi með að verulega muni hægja á afhendingu bóluefna frá og með 29. mars.

Matt Hancok, heilbrigðisráðherra, segir að nú sé búið að gefa 25 milljónum landsmanna að minnsta kosti einn skammt af bóluefni.

Yfirvofandi tafir munu hægja á gangi bólusetninga og munu aðallega bitna á fólki yngra en fimmtugu. Í fyrrnefndu bréfi kemur fram að nota eigi þá skammta sem berast frá og með 29. mars til að gefa þeim seinni skammtinn sem hafa nú þegar fengið fyrri skammtinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig