Bandaríski stjórnmálamaðurinn Ronald Ernest Paul virðist hafa fengið heilablóðfall í beinni útsendingu í dag. Ronald, betur þekktur sem Ron Paul, sat í fulltrúadeild Bandaríkjaþings fyrir Texas-fylki á árinum 1997-2013 og sóttist eftir tilnefningu sem forsetaframbjóðandi Repúblíkanaflokksins fyrir kosningarnar í Bandaríkjunum 2008. Ron er nú kominn á eftirlaun en er málsmetandi maður um stjórnmál.
Ron Paul veitti viðtal í dag á YouTube rás sinni í beinni útsendingu. Hann var að tala um efnahaginn í Bandaríkjunum þegar hann varð skyndilega þvoglumæltur og átti erfitt með að halda áfram. Slökkt var á útsendingunni og samkvæmt Fox-fréttastöðinni var þingmaðurinn fyrrverandi fluttur í flýti á sjúkrahús. Samkvæmt FOX er Ron þó við meðvitund og bjartsýnn fyrir framhaldinu. Hann er 85 ára að aldri.
https://www.youtube.com/watch?v=dFsaIMw8uF8&ab_channel=WTN