fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Pressan

Danir slaka á hömlum vegna COVID-19 – Hárgreiðslustofur, dómstólar og fleiri taka til starfa á nýjan leik

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 17. apríl 2020 07:50

Mörg erlend ríki stunda njósnir í Danmörku.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ríkisstjórn danskra jafnaðarmanna náði í gærkvöldi samkomulagi við stóran hluta þingsins um að létta fleiri hömlum af dönsku samfélagi en ákveðið hafði verið fram að þessu. Í vikunni var fyrsta skrefið stigið þegar skólar og leikskólar tóku til starfa á nýjan leik. Í gærkvöldi náði minnihlutastjórn jafnaðarmanna síðan samkomulagi við aðra flokka um að opna fyrir starfsemi fleiri í næstu viku.

Frá og með mánudegi mega hárgreiðslustofur taka til starfa á nýjan leik, ökukennarar mega hefja kennslu á nýjan leik og sjúkraþjálfarar einnig auk nokkurra annarra stétta. Dómstólar landsins munu einnig taka til starfa á nýjan leik.

Þingflokkarnir komust að málamiðlum um hvaða starfsemi ætti að opna fyrir á nýjan leik og fengu ekki allir óskum sínum framgengt.

Í næstu viku hefjast svo viðræður um hvernig staðið verður að næsta stigi hvað varðar að aflétta þeim hömlum sem hafa verið settar á ýmsa starfsemi í samfélaginu. Mikill þrýstingur er á að leyfa veitingahúsum, kaffihúsum og framhaldsskólum að hefja starfsemi á nýjan leik en heilbrigðisyfirvöld leggjast gegn því eins og staðan er núna.

Danir hafa náð ágætum tökum á útbreiðslu veirunnar og hefur álagið á heilbrigðiskerfið verið mun minna en óttast var. 233 hafa látist af völdum veirunnar til þessa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þessa ónauðsynlegu hluti eiga margir erfitt með að losa sig við

Þessa ónauðsynlegu hluti eiga margir erfitt með að losa sig við
Pressan
Í gær

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda
Pressan
Í gær

Trump er ekki ósnertanlegur – Svona er hægt að koma honum úr embætti

Trump er ekki ósnertanlegur – Svona er hægt að koma honum úr embætti
Pressan
Í gær

Pútín breytir reglunum – Nú geta fleiri verið sendir á vígvöllinn

Pútín breytir reglunum – Nú geta fleiri verið sendir á vígvöllinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður
Pressan
Fyrir 2 dögum

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump