fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Pressan

Eiginmaður Bjarkar er „prepper“ – „Ég er mjög ánægð með að hann geri þetta“

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 22. september 2020 06:45

Ulrich í verslunarferð. Skjáskot/DR

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björk Dethlef Húnfjörð og eiginmaður hennar Ulrich Dethlef Jørgensen búa í Danmörku. Þau komu við sögu í fyrsta þætti nýrrar þáttaraðar Danska ríkissjónvarpsins í gærkvöldi sem fjallar um svokallaða „preppers“. Þættirnir nefnast „Når katastrofen rammer Danmark“ en í þeim eru nokkrum „preppers“ gerð skil en þeir undirbúa sig undir hamfarir sem munu lama samfélagið og alla starfsemi þess um lengri eða skemmri tíma. „Preppers“ safna matarbirgðum, vatni, vopnum og fleiru til að geta lifað af um lengri tíma án nokkurrar utanaðkomandi aðstoðar.

Í þættinum er rætt við nokkra „preppers“ og þar á meðal Ulrich og Björk kemur aðeins við sögu. Ulrich segist hafa verið „prepper“ í um 20 ár. Hann segir að „preppers“ lifi nokkuð hefðbundnu lífi en séu þó undir hamfarir búnir og geti því vonandi komist betur í gegnum þær en aðrir.

Hann segir einnig í þættinum að hann hafi verið undir heimsfaraldur kórónuveirunnar búinn og hafi gert sínar varúðarráðstafanir. Hann keypti meðal annars gasgrímur fyrir sig og Björk en ekki fyrir börnin þeirra þrjú þar sem þau eru of lítil til að nota þær.

Danska ríkisstjórnin lokaði stórum hluta af samfélaginu þann 11. mars vegna heimsfaraldursins og í þættinum lýsir Ulrich því þegar hann fór að sækja eigur barnanna í skóla þeirra daginn eftir. Hann fór þá íklæddur hvítum heilgalla, með hanska og gasgrímu. Sami útbúnaður og sjá má á forsíðumynd þessarar greinar. Hann sagði að húsverðinum í skólanum hafi brugðið mjög þegar hann kom í skólann í þessum klæðnaði.

Í þættinum er meðal annars fylgst með Ulrich þegar hann fer að versla í hverfisbúðinni íklæddur heilgalla, með hanska og gasgrímu.

„Í fyrsta sinn sem ég fór að versla í hlífðargalla, með hanska og gasgrímu hugsaði ég með mér: „Hvað heldur hitt fólkið?“ En í þessari stöðu verð ég að leiða hjá mér hvað aðrir hugsa því ég verð að tryggja eigið öryggi og ég hef ekki hugmynd um hvort nærumhverfi mitt verði næsti miðpunktur faraldursins.“

Ulrich að velja vörur í versluninni. Skjáskot/DR

„Fólki má alveg finnast ég bregðast of harkalega við, ég geri þetta ekki og bendi á það, ég geri þetta af því að ég vil passa upp á sjálfan mig og fjölskyldu mína,“

segir hann í þættinum um viðhorf annarra til hans.

Fjölskyldan seldi nýlega húsið sitt og keypti annað þar sem ætlunin er að útbúa neðanjarðarbyrgi.

Ulrich og Björk við nýja húsið. Skjáskot/DR

Björk styður Ulrich heilshugar í þessu og segir:

„Ég er mjög ánægð með að hann geri þetta,“

þegar rætt er við hana í þættinum sem áhugasamir geta séð á DR1.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir ákærð – Hótaði barnsföður sínum að birta klámfengið efni

Móðir ákærð – Hótaði barnsföður sínum að birta klámfengið efni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Norður-Kórea er betur undirbúin undir stríð en nokkru sinni áður

Norður-Kórea er betur undirbúin undir stríð en nokkru sinni áður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fundu bát sem var fullur af rotnandi líkum

Fundu bát sem var fullur af rotnandi líkum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kynlífspartý, fíkniefni, Viagra og morð – Kaþólska kirkjan tengist vafasömum málum

Kynlífspartý, fíkniefni, Viagra og morð – Kaþólska kirkjan tengist vafasömum málum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lögreglukonan sem réðst ein til atlögu gegn stungumanninum í Sydney – „Ég var bara að vinna mína vinnu“ – Nýjar upplýsingar um morðingjann vekja óhug

Lögreglukonan sem réðst ein til atlögu gegn stungumanninum í Sydney – „Ég var bara að vinna mína vinnu“ – Nýjar upplýsingar um morðingjann vekja óhug