fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Pressan

Ritstjóri hættir eftir umdeilda samlíkingu kórónuveirunnar

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 5. maí 2020 11:15

COVID-19 veiran. Mynd:U.S. Army

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nick Masuda, ritstjóri dagblaðsins Santa Barbara News-Press hætti störfum á föstudaginn eftir að þeim hömlum, sem hafa verið settar á líf Bandaríkjamanna vegna COVID-19 faraldursins, var líkt við ástandið í Þýskalandi á valdatíma nasista í leiðara blaðsins.

Blaðið er gefið út í Santa Barbara í Kaliforníu. Það var eigandi þess og útgefandi, Wendy McCaw, sem skrifaði leiðarann. Í honum sakaði hún demókrata um að nota heimsfaraldurinn til að ná pólitískum markmiðum sínum fram og líkti fyrirmælum um að fólk eigi að halda sig heima við ástandið í Þýskalandi á valdatíma nasista.

„Frelsi okkar hefur verið tekið af okkur vegna hvers, veiru? Hugleiðið það.“

Skrifaði hún í leiðaranum sem bar yfirskriftina „Við búum við harðstjórn.“

„Ef þetta land kemst í þessa stöðu vegna veiru, hvað þarf þá til að breyta okkur í Sovétríkin eða Þýskaland nasista? Við erum ekki svo fjarri því nú þegar við þurfum að standa í röð til að komast inn í stórverslanir.“

Skrifaði hún einnig.

Í athugasemd með leiðaranum kemur fram að hann sé eingöngu skoðun þess sem hann ritar og endurspegli ekki endilega skoðanir starfsmanna blaðsins.

Á laugardaginn skýrði Santa Barbara Independent frá því að Masuda hefði hætt störfum á föstudaginn en hann hafði ritstýrt Santa Barbara News-Press í 18 mánuði. Ástæðan er að sögn leiðarinn umræddi.

Wendy McCaw hefur lengi verið umdeild innan fjölmiðlaheimsins í Kaliforníu. Hún keypti Santa Barbara News-Press árið 2000.  Í eigendatíð hennar hefur blaðið tekið harða afstöðu í mörgum málum. Það er til dæmis á móti þeirri hefð að kalkúnn sé snæddur á þakkargjörðarhátíðinni. Blaðið er einnig á móti því að verkafólki séu tryggð lágmarkslaun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Lykillinn að varanlegu þyngdartapi er fundinn

Lykillinn að varanlegu þyngdartapi er fundinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir segir að þessar fimm einföldu daglegu venjur geti minnkað líkurnar á hjartaáfalli

Læknir segir að þessar fimm einföldu daglegu venjur geti minnkað líkurnar á hjartaáfalli
Pressan
Fyrir 2 dögum

Foreldrarnir héldu að níu ára sonurinn væri bara þreyttur – Síðan kom niðurstaðan

Foreldrarnir héldu að níu ára sonurinn væri bara þreyttur – Síðan kom niðurstaðan
Pressan
Fyrir 3 dögum

Andlát Hedviga Golik – Hvernig gat þetta átt sér stað?

Andlát Hedviga Golik – Hvernig gat þetta átt sér stað?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Líf eftir dauðann – Svona er að deyja

Líf eftir dauðann – Svona er að deyja
Pressan
Fyrir 3 dögum

12 ára stúlka kallar eftir réttlæti vegna morðsins á föður sínum

12 ára stúlka kallar eftir réttlæti vegna morðsins á föður sínum