DV fer hamförum í rjómabollum og hitar rækilega upp fyrir einn besta dag ársins – sjálfan bolludaginn. Vatnsdeigsbollur geta vafist fyrir sumum en hér kemur skotheld uppskrift.
Hráefni:
220 g smjör
2 bollar vatn
1/2 tsk. salt
2 bollar hveiti
6–8 egg
Aðferð:
Hitið ofninn í 200°C á undir- og yfirhita. Setjið smjör og vatn í pott og bræðið yfir meðalhita. Náið upp suðu. Slökkvið síðan á hellunni og blandið hveiti og salt rösklega saman við þar til blandan hættir að festast við pottinn. Skellið í hrærivélaskál og kælið þar til hættir að rjúka úr deiginu þegar það er snert. Pískið eggin, byrjið á sex eggjum ef þau eru mjög stór. Hafið hrærivélina í gangi og blandið eggjunum smátt og smátt saman við. Passið að hræra vel á milli til að sjá þykktina á deiginu. Það á að vera frekar stíft og glansandi. Sprautið bollum á smjörpappírsklædda ofnplötu eða notið skeið til að móta bollurnar. Bakið í 25 til 30 mínútur og alls ekki opna ofninn fyrr en eftir 20 mínútur svo bollurnar falli ekki. Hér fylgja með þrjár hugmyndir að fyllingum.
Bræðið saman nokkrar bingókúlur og dreitil af rjóma. Fyllið bolluna með rjóma, 1/3 af kókosbollu og lakkrískurli. Lokið bollunni og hellið bingókúlusósunni yfir.
Sprautið karamellusósu í botninn og rjóma ofan á. Skerið niður Twix og setjið ofan á rjómann. Lokið bollunni. Blandið saman mjólk, flórsykri og karamellusósu þar til þykkur karamelluglassúr verður til. Hellið ofan á bolluna.
Hrærið Royal-búðing með sítrónubragði saman við 1/4 lítra mjólk og 1/4 lítra rjóma. Látið stífna. Fyllið bolluna með búðingnum og jarðarberjum. Dustið flórsykri ofan á.