fbpx
Fimmtudagur 16.maí 2024
Pressan

Klikkuð samsæriskenning um Joe Biden á miklu flugi

Pressan
Mánudaginn 29. apríl 2024 04:05

Samsett mynd af Carrey og Biden sem er mikið notuð af samsæriskenningasmiðum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Getur virkilega verið að Joe Biden, Bandaríkjaforseti, sé dáinn og búið sé að jarðsetja hann og að til að villa um fyrir almenningi hafi kanadíski grínistinn og leikarinn Jim Carrey tekið að sér að leika hann?

Svarið er auðvitað nei en samt sem áður er þetta samsæriskenning sem er á miklu flugi á samfélagsmiðlum þessa dagana.

Líklega má tengja þessa samsæriskenningu við það að Jim Carrey hefur komið fram í gervi Biden í grínþáttunum Saturday Night Live.

Í myndbandinu hér fyrir neðan má meðal annars sjá Jason Selvig ræða við einarða stuðningskonu Donald Trump um þetta og er ekki annað að heyra en hún sé sannfærð um að Biden sé dáinn og að Jim Carrey og fleiri komi fram í gervi hans.

Þetta myndband var birt í apríl 2022, rúmu ári eftir að Biden tók við forsetaembættinu. Margir á hægri væng bandarískra stjórnmála voru þá enn mjög ósáttir og reiðir yfir tapi Donald Trump í forsetakosningunum og því hölluðu sífellt fleiri sér að þessari samsæriskenningu, ekki síst þeir sem trúa á samsæriskenningar QAnon.

Einn af grunnstoðum samsæriskenninga QAnon er að Bill og Hillary Clinton, Frans páfi, Dalai Lama, Oprah Winfrey, Tom Hanks og fleiri þekktir einstaklingar reki saman djöfaldýrkandi barnaníðshring og séu höfuðstöðvar hans í kjallara pitsastaðar í Washington D.C. Er Donald Trump hinn mikli frelsari að þeirra mati og sé hlutverk hans að bjarga heiminum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Fólk áttar sig ekki á þessu – „Synir okkar eru bræður, frændur og tvíburar“

Fólk áttar sig ekki á þessu – „Synir okkar eru bræður, frændur og tvíburar“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrir einni milljón ára blönduðust tvær plöntur óvart og við njótum góðs af því

Fyrir einni milljón ára blönduðust tvær plöntur óvart og við njótum góðs af því
Pressan
Fyrir 4 dögum

Líkami þinn lyktar þegar hann er stressaður og hundar finna þessa lykt

Líkami þinn lyktar þegar hann er stressaður og hundar finna þessa lykt
Pressan
Fyrir 4 dögum

Heit umræða – Hvort þurfa konur eða karlar að sofa lengur?

Heit umræða – Hvort þurfa konur eða karlar að sofa lengur?
Pressan
Fyrir 5 dögum

Nokkurra vikna stúlka á gjörgæslu með kíghósta – „Þetta hefur verið algjör martröð“

Nokkurra vikna stúlka á gjörgæslu með kíghósta – „Þetta hefur verið algjör martröð“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Umdeilt viðtal við hina raunverulegu Mörthu kallað það siðlausasta fyrr og síðar – Meintur eltihrellir fær að segja sína hlið

Umdeilt viðtal við hina raunverulegu Mörthu kallað það siðlausasta fyrr og síðar – Meintur eltihrellir fær að segja sína hlið