fbpx
Laugardagur 07.febrúar 2026
Fréttir

Fannst látinn í Póllandi

Ritstjórn DV
Föstudaginn 24. janúar 2020 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pólskur karlmaður, Mateusz Tynski, sem svipast var um eftir hér á landi á síðasta ári fannst látinn í Póllandi fyrr í þessum mánuði. Mateusz var búsettur í Sandgerði en hann hvarf í febrúar í fyrra. Bróðir hans, Karol Tynski, staðfestir þetta í samtali við Fréttablaðið í dag.

Mateusz sást síðast á flugvellinum í Keflavík og var hann talinn hafa farið úr landi. Af þeim sökum var hans ekki leitað hér á landi en lögreglan í Póllandi leitaði hans í sumar.

Í Fréttablaðinu kemur fram að hann hafi ekki látið fjölskyldu sína í Póllandi vita af heimförinni. Bróðir hans segir að það hafi verið óvenjulegt og ekki væri vitað til þess að hann ætti við einhver vandamál að stríða á Íslandi. Mateusz bjó hér á landi í fjögur ár og var ókvæntur og barnlaus.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hnakkrifist í Kópavogi – Óttast að gögn leki í fjölmiðla og skaði hagsmuni bæjarbúa

Hnakkrifist í Kópavogi – Óttast að gögn leki í fjölmiðla og skaði hagsmuni bæjarbúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmaður slegin vegna Bakkakotsmálsins: „Það er og hefur verið eitthvað verulega rotið í samfélaginu“

Þingmaður slegin vegna Bakkakotsmálsins: „Það er og hefur verið eitthvað verulega rotið í samfélaginu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þráinn: „Þegar upp er staðið var útkoman fyrir marga hreint helvíti og óbætanlegur skaði“

Þráinn: „Þegar upp er staðið var útkoman fyrir marga hreint helvíti og óbætanlegur skaði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gísli sagði upp starfi sem hann elskaði til að geta hjálpað Lucy Letby – „Ég færði fórn í góðri trú og sagði upp“

Gísli sagði upp starfi sem hann elskaði til að geta hjálpað Lucy Letby – „Ég færði fórn í góðri trú og sagði upp“