

Saga drengsins, Cassians Joubert, hefur vakið mikla athygli vestanhafs en hann var tekinn að hluta úr móðurkviði, loftvegur hans opnaður með skurðaðgerð og honum síðan komið aftur fyrir í legi móður sinnar þar sem meðgangan hélt áfram.
Cassian greindist með sjaldgæfan og hættulegan sjúkdóm á 19. viku meðgöngu, congenital high airway obstruction syndrome, sem einnig gengur undir heitinu CHAOS.
Sjúkdómurinn veldur því að þykk himna lokar loftvegi fóstursins og getur leitt til þess að vökvi safnast upp í lungum þess. Talið er að aðeins eitt af hverjum 50 þúsund börnum greinist með sjúkdóminn og hann er oft banvænn.
„Ég rakst sífellt á orðasambandið „mjög banvænt“ þegar ég var að lesa mér til um þetta,“ segir móðirin, Keishera, í bandarískum fjölmiðlum.
Læknirinn sem meðhöndlaði mæðginin, Mike Vlastos, segir að hann hefði aðeins séð tólf sambærileg tilfelli á 42 ára starfsferli sínum og að aðeins þrjú barnanna hefðu lifað af.
Fyrst var reynt að framkvæma aðgerð inni í móðurkviði með leysitækni til að opna loftveg barnsins, en sú tilraun mistókst. Þá gripu læknarnir til óvenjulegrar lausnar.
Cassian var tekinn að hluta út með keisaraskurði þegar Keishera var komin 25 vikur á leið. Höfuð hans og handleggir voru utan móðurkviðarins á meðan restin af líkama hans var áfram tengd fylgjunni svo hann héldi áfram að fá súrefni. Á meðan framkvæmdi sérfræðingur skurðaðgerð til að opna loftveg hans.
Aðgerðinni lauk með því að barninu var komið aftur fyrir í leginu og meðgangan látin halda áfram.
„Þetta var lítil innsýn í framtíðina,“ sagði Keishera eftir að hafa fengið að sjá mynd af syni sínum meðan á aðgerðinni stóð. „Innsýn í litla drenginn sem ég myndi að lokum taka með mér heim af sjúkrahúsinu.“
Sex vikum síðar fór Keishera af stað og fæddist Cassian með sérhæfðri aðgerð sem Orlando Health Women’s Institute hefur lýst sem bæði sjaldgæfri og nýstárlegri.
Eftir fæðinguna tók við löng og erfið barátta á nýburagjörgæslu þar sem Cassian dvaldi í rúma fjóra mánuði. Þegar hann fæddist vó hann aðeins 5,6 merkur.
Faðir hans, Greg Joubert, segir starfsfólk sjúkrahússins hafa haft fullkomna stjórn á aðstæðum og segist afar þakklátur fyrir að allt hafi farið vel, bæði fyrir son hans og eiginkonu.
Cassian fékk loks að fara heim til fjölskyldu sinnar rétt fyrir síðustu jól. Hann þarf þó enn að gangast undir frekari aðgerðir og þarf enn á öndunarvél að halda vegna himnunnar sem lokar öndunarvegi hans að hluta. Foreldrarnir segja þakklætið gagnvart læknateyminu ólýsanlegt.
„Að hann skyldi koma heim er hápunkturinn í þessu öllu saman,“ sagði Keishera. „Orðin „takk fyrir“ ná ekki einu sinni að lýsa þakklæti okkar til allra þeirra sem komu að þessu.“