fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025

Það fæðist nýr hálfviti á hverri mínútu

Svarthöfði
Laugardaginn 28. nóvember 2020 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í slendingar eru annálaðir tækifærissinnar. Svartur föstudagur er gott dæmi um það. Hér höfum við um árabil heyrt sögur frá nágrönnum okkar fyrir vestan í Bandaríkjunum um þennan brjálaða tilboðsdag sem haldinn er eftir þakkargjörðarhátíðina. Kaninn dröslar sér útþaninn af kartöflumús og kalkúni til að standa í löngum þröngum biðröðum til að næla sér í takmarkað upplag af einhverri neysluvörunni á grín-verði. Æsingurinn er svo mikill að fólk og starfsmenn í búðum eru í stórhættu og margir slasast í troðningnum.

En eins og kjaftasaga sem gengur manna á milli hefur mikið þynnst úr þessum tilboðsdegi þegar hann nemur land hér á landi. Svarthöfði er alltaf hrifinn af góðum tilboðum. En honum finnst frekar asnalegt þegar íslensk fyrirtæki eru að auglýsa aumingjalegan 15 prósenta afslátt sem einhver „Black-Friday“ kostakjör. Þetta er bara bull og vitleysa og ekkert merkilegra en hefðbundnir sófadagar í Ilvu.

Engu að síður missa Íslendingar sig alveg jafn mikið og Kaninn. Fyrir þennan líka ómerkilega afslátt. Þetta gerir það að verkum að við kaupum og kaupum í einhverri bilaðri maníu drasl sem við hefðum aldrei keypt ef við hefðum haft heila hugsun. En þegar afsláttur er kynntur, og tímabundinn í þokkabót, þá þýðir ekkert að stoppa og hugsa. Maður gæti misst af frábærum díl.

Aumingja frænkurnar og frændurnir sem sitja uppi með drasl í jólagjöf sem þurfti að bjóða 20% afslátt af svo nokkur fengist til að kaupa þetta.

Svo er svarti föstudagurinn hér á landi enginn föstudagur. Flestir buðu bara upp á afslátt í heila viku. Varla er þetta heil vika af föstudögum. Af hverju getum við ekki bara búið til eitthvert íslenskt nafn yfir þetta. Jólabóla – Maníuvika – eða eitthvað sem er ekki að vísa í hefð erlendis sem við erum ekki einu sinni að apa rétt eftir?

Svarthöfði er samt að fara að taka þátt í þessu. Hann slær ekki hendinni á móti því að kaupa jólagjafirnar á afsláttarverði. En hins vegar væri hann til í að sjá ríkara eftirlit með þessari framkvæmd. Hver er að tryggja að verslanir séu ekki að hækka verð í aðdragandanum og blekkja okkur? Annað eins hefur nú gerst. Svarthöfði hefur hvorki þolinmæði né tíma til að gera stöðugan verðsamanburð í október, nóvember og desember. Auk þess sem sumir söluaðilar geta verið ansi kræfir í að spinna blekkingavefinn.

Það fæðist nýr hálfviti á hverri mínútu, er orðtak sem er eignað sirkusstjóranum P. T. Barnum. Hvernig getur Svarthöfði tryggt að hann sé ekki einn af þessum hálfvitum? Og hvernig ætlar þú að gera það? Gleymum ekki að beita gagnrýnni hugsun og vantreysta öllum. Það hefur sýnt sig að það mun borga sig á endanum enda eru allir að reyna að svindla á þér og enginn er með þér í liði nema þú sjálfur. Það er ekkert gaman að kaupa köttinn í sekknum, jafnvel þótt hann sé á afslætti

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Sveindís Jane: „Maður var eiginlega orðlaus yfir þessu“

Sveindís Jane: „Maður var eiginlega orðlaus yfir þessu“
433Sport
Fyrir 2 klukkutímum
Kyle Walker í Burnley
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 klukkutímum

Sigmundur Ernir skrifar: Orrustan um Ísland stendur yfir

Sigmundur Ernir skrifar: Orrustan um Ísland stendur yfir
Pressan
Fyrir 2 klukkutímum

Er líf eftir dauðann? Lítil stúlka upplifði ótrúlega hluti þegar hún dó

Er líf eftir dauðann? Lítil stúlka upplifði ótrúlega hluti þegar hún dó
Eyjan
Fyrir 4 klukkutímum

Orðið á götunni: Málþófið tætir fylgið af Sjálfstæðisflokknum – líka í borginni

Orðið á götunni: Málþófið tætir fylgið af Sjálfstæðisflokknum – líka í borginni
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Rashford missir númerið í Manchester

Rashford missir númerið í Manchester
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Segir að United hafi gert ein stærstu mistök í sögu fótboltans í fyrra

Segir að United hafi gert ein stærstu mistök í sögu fótboltans í fyrra
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Borga mögulega 50 milljónir fyrir leikmann sem Arsenal vildi ekki sjá

Borga mögulega 50 milljónir fyrir leikmann sem Arsenal vildi ekki sjá
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum
Julian McMahon látinn
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

KSÍ vísar gagnrýnisröddum á bug – „Allt væl um þetta, okkur gæti ekki staðið meira á sama“

KSÍ vísar gagnrýnisröddum á bug – „Allt væl um þetta, okkur gæti ekki staðið meira á sama“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Myndband: Núverandi og fyrrverandi leikmenn Liverpool mættir til Portúgal – Jarðarförin er í dag

Myndband: Núverandi og fyrrverandi leikmenn Liverpool mættir til Portúgal – Jarðarförin er í dag