fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024

Hvað næst, hænsnastígar?

Svarthöfði
Sunnudaginn 7. júní 2020 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hversu hallærislegar og bjánalegar þurfa ákvarðanir borgarstjórnar að vera til þess að jafnvel lögreglan hundsi þær með öllu?

Þessu var svarað á dögunum þegar fulltrúi lögreglunnar á samfélagsmiðlinum Twitter sagði lögreglu ekki sekta ökumenn sem ækju eftir nýjustu göngugötum miðborgarinnar. Svarthöfði skildi þessa ákvörðun lögreglu vel.

Fyrir það fyrsta hefur Laugavegur í gegnum áratugina verið tengdur við einkabílinn. Hver hefur ekki farið á rúntinn, eða með öðrum orðum tekið einn Laugara, svona til að kíkja á mannlífið, án þess þó að hætta sér of nærri því?

Nú á að helga þessa götu litríkum túristum sem skíta á víðavangi, völtum ungmennum sem hafa fengið sér of mikið í tána, og svo lögreglumönnum á hjólum að vandræðast við að sinna fjölda útkalla á knæpum við göngugötur. Þetta náttúrulega gengur ekki. Enginn bað um þessar breytingar nema einhverjir fáeinir blómafaðmandi hipsterar sem borða bara lífrænan vegan mat og hreykja sér af því að hjóla í vinnuna.

Ísland er land einkabílsins, og land séreignastefnunnar. Svona er þetta, hefur verið og svona viljum við hafa það. Hvergi var það skrifað á kosningaloforðalista Samfylkingarinnar að eina hverfið sem ætti einhverju máli að skipta væri miðborgin og þangað ætti helst enginn að komast nema latte-lepjandi hipsterarnir sem búa þar fyrir, eða fuglinn fljúgandi.

Það er varla að maður nenni að standa í því að fara inn í borgina núorðið. Enda lítið annað þar að gera en að standa í röð með ókunnugu fólki sem vill spjalla. Galið! Í fyrsta lagi er vonlaust að finna stæði. Fyrir stæðin þarf að borga. Jafnvel bílastæðahúsin sem áttu að vera svo frábær og leysa allan heimsins vanda rukka milljón og tvær fyrir hverja sekúndu sem þú leggur bílnum þar. Síðan er það blessuð umferðin.

En umferðin veit vart sjálf hvar hún getur verið. Götum er lokað og hjáleiðir merktar, stefnum í götum breytt fyrirvaralaust og svo er götum, sem samkvæmt gömlum íslenskum hefðum er hægt að aka niður, skyndilega lokað og læst. Hver drepur rúntinn? Eina vinsælustu afþreyingu Íslendinga?

Svo má nefna þennan hundleiðinlega hávaða í endalausum framkvæmdum við byggingaskrímslin sem loka fyrir sjávarútsýnið. Blessuðu Bæjarins bestu eru nú umluktar nýstárlegum byggingum sem eiga álíka vel við gamla stílinn í miðbænum og olía á við vatn.

Og aftur að þessum blessuðu göngugötum. Er ekki frekar tilgangslaust að ætla að hafa göngugötu á verslunarvegi þar sem svo hefur verið þrengt að verslunum og þjónustu að fyrirtækin treysta sér vart til að starfa áfram? Nema göngugöturnar séu algjörlega ætlaðar fyrir lundabúðir, túrista, hjólaviðgerðarsjoppur og kaffihús fyrir listaspírurnar með sínar moltutunnur og hænsnablæti sem eru búnar að leggja undir sig miðborgina. Hvað næst, hænsnastígar?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United
Eyjan
Fyrir 8 klukkutímum

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum
Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf
Eyjan
Fyrir 9 klukkutímum

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Verk og vit sett með pomp og prakt

Verk og vit sett með pomp og prakt
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Baldur um ófrægingarherferð gegn sér: „Þetta hefur engin áhrif á okkur Felix“

Baldur um ófrægingarherferð gegn sér: „Þetta hefur engin áhrif á okkur Felix“