fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Athyglissjúkir og hæfileikalausir áhrifavaldar

Svarthöfði
Sunnudaginn 20. janúar 2019 13:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svarthöfði ákvað að reyna að vera nútímalegur og byrjaði þess vegna bæði á Snapchat og Instagram. Fékk Svarthöfði því leiðbeiningar um hvaða fólki væri best að fylgjast með eða „adda“ eins börnin segja. Þetta var meðal annars einmana sjómannskona sem reyndist vera strigakjaftur. Einnig einhver bílstjóri og galgopi úr Keflavík sem drekkur ótæpilegt magn af bjór.

Hin fyrstu kynni af þessum kima internetsins ollu Svarthöfða miklum vonbrigðum. Svarthöfði bjóst við að þessi reynsla myndi göfga sálina en þess í stað er Svarthöfði fastur í að horfa á tóma froðu allan daginn. Allt þetta fólk, eða áhrifavaldar eins og það vill láta kalla sig, gerir lítið annað en að auglýsa smink og vörur til þrifa. Þetta er í raun afturhvarf til þess tíma þegar Íslendingar sátu fastir yfir Sjónvarpsmarkaðinum því ekkert annað var í sjónvarpinu.

Þetta er ekki vitund skemmtilegt eða áhugavert, en farsíminn hefur gert okkur að þrælum sínum og þetta er það sem er í boði þar. Athyglissjúkt fólk sem er svo hæfileikasnautt að það getur hvergi fundið sér farveg nema í bjánaskap.

Botninum er síðan náð þegar þetta lið setur svokallaða „filtera“ á myndböndin sín og þykist vera álfar eða sjóræningjar. Skríkja svo og hlægja að eigin fyndni. Svarthöfði er kominn á þá skoðun að tæknin sé að gera okkur að hálfvitum.

Af hverju á líf þessa fólks að vera þess virði að Svarthöfði fylgist með því dag og nótt? Líf fólks sem reynir að pranga einhverju drasli inn á þá nytsömu sakleysingja sem festast í þessum ávana?

Eftir viku af auglýsingasprengjuregni á þessum guðsvoluðu samfélagsmiðlum ákvað Svarthöfði að eyða þessu út af símanum. Þess í stað hefur Svarthöfði ákveðið að snúa aftur á þann stað netsins sem er ærlegur og gegnheill. Nefnilega Moggabloggið. Þar fer fram göfgandi, vitræn og óspillt umræða um þjóðfélagsmál. Svarthöfði hefur samt áhyggjur af meðalaldrinum þar og hversu föst æskan er í viðjum kjánaskapar og fals.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Elmar Örn dæmdur í 3,5 árs fangelsi fyrir nauðganir – Sendi myndbönd af glæpnum til konunnar í pósti

Elmar Örn dæmdur í 3,5 árs fangelsi fyrir nauðganir – Sendi myndbönd af glæpnum til konunnar í pósti
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Garnacho bað Ten Hag afsökunar – „Hann verður að læra mikið og hratt“

Garnacho bað Ten Hag afsökunar – „Hann verður að læra mikið og hratt“
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Átján rafmyntaverum lokað í Svíþjóð – Lugu að skattinum til að spara milljarða

Átján rafmyntaverum lokað í Svíþjóð – Lugu að skattinum til að spara milljarða
Eyjan
Fyrir 4 klukkutímum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 klukkutímum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Lögreglan hefur heimsótt heimili hans fjórum sinnum á þremur dögum – „Velkomin til Norður-Kóreu“

Lögreglan hefur heimsótt heimili hans fjórum sinnum á þremur dögum – „Velkomin til Norður-Kóreu“
Eyjan
Fyrir 7 klukkutímum

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Svona hafa síðustu leikir Stjörnunnar og Vals farið – Hvað gerist í kvöld?

Svona hafa síðustu leikir Stjörnunnar og Vals farið – Hvað gerist í kvöld?