fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026

Með og á móti: Lúpína

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 18. júní 2018 14:00

Mynd/Wikimedia commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Með

 

Þór Jakobsson veðurfræðingur

„Við hjónin höfum sinnt, síðan 1986, 15 hektara skika í Mörk á landi sem Landgræðsla ríkisins á. Þar höfum við notið útiveru og náttúrunnar í ríkum mæli langt frá ys og þys borgarinnar, en líka lagt mikla vinnu í landgræðslu, skógrækt og girðingarvinnu. Land þetta er furðu margbreytilegt, sums staðar graslendi frá fornu fari en annars staðar eru sendin svæði frá því er allt blés upp á þessum slóðum þar til Landgræðslan fór að spyrna við fótum. Hvað sem við sáðum ár eftir ár á þessum sandflákum þá greri aldrei. En einn góðan veðurdag fyrir um 15 árum fengum við lúpínu hjá Landgræðslunni sem stakk upp á að við þektum þessa „auðnir“ með lúpínu innan um birkiplöntur sem við gróðursettum um leið. Og viti menn, þá tók landið stökkbreytingum til hins betra. Ég er því hlynntur lúpínunni EN – með stóru stóru „enni“: ÞAÐ MÁ EKKI SLAPPA AF. Það þarf að gefa sér tíma til að halda henni í skefjum á vorin, STÝRA útbreiðslunni!“

 

Á móti

Álfheiður Ingadóttir, líffræðingur og fyrrv. ráðherra

„Lúpínan er öflug landgræðsluplanta og hefur kosti sem slík. Hins vegar hefur ofnotkun og skefjalaus útbreiðsla í nafni skógræktar og landgræðslu víða útrýmt berjalyngi og fínlegum blómgróðri. Líffræðilegur fjölbreytileiki tapast og eftir stendur einhæf lúpínubreiða. Sífellt fleiri sveitarfélög skera nú upp herör gegn lúpínu en oft með litlum árangri enda vandaverk að eyða plöntunni án þess að drepa allan annan gróður. Segja má að allt sé reynt til að hamla útbreiðslu hennar – á Dalvík, í Fjarðabyggð, Hrísey, Húsavík, Hveragerði, Ísafjarðarbæ, Mosfellsbæ, Reykjavík, Skagaströnd, Stykkishólmi, Vogastapa – listinn er lengri. Vísindamenn hafa kynnt tillögur um útrýmingu plöntunnar og jafnvel Landgræðsla ríkisins er hætt að nota lúpínu sem landgræðslujurt nema á stórum samfelldum rofsvæðum. Það er þess vegna tímaskekkja að enn skuli menn leyfa sér að dreifa þessari ágengu plöntu á hálendinu og á friðlýstum svæðum. Ég er þeirrar skoðunar að það sé hervirki gegn náttúru landsins.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Nef og fætur geta haft áhrif á hversu auðveldlega fólk veikist

Nef og fætur geta haft áhrif á hversu auðveldlega fólk veikist
Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Metfengur hjá spænsku lögreglunni – Kókaín að andvirði 120 milljarða

Metfengur hjá spænsku lögreglunni – Kókaín að andvirði 120 milljarða
Pressan
Fyrir 9 klukkutímum

DNA úr barnabarni leysti dularfullt mál

DNA úr barnabarni leysti dularfullt mál
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Tíu færa sig um set – Goðsögn þar á meðal

Tíu færa sig um set – Goðsögn þar á meðal
Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Fókus
Fyrir 12 klukkutímum

Tíu ódýrustu einbýlishúsin á Íslandi í dag

Tíu ódýrustu einbýlishúsin á Íslandi í dag
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Gáttaður yfir tíðindum frá Hafnarfirði – „Ég verð ekki oft orðlaus en varð það þarna“

Gáttaður yfir tíðindum frá Hafnarfirði – „Ég verð ekki oft orðlaus en varð það þarna“
Pressan
Í gær

Stóð í röð til að vera einn af þeim 1.000 sem sváfu hjá Bonnie Blue – Segir frá hvað stoppaði hann

Stóð í röð til að vera einn af þeim 1.000 sem sváfu hjá Bonnie Blue – Segir frá hvað stoppaði hann