fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Fréttir

Tvennum sögum fer af drápi ICE í Minneapolis – Lá í jörðinni

Ritstjórn DV
Laugardaginn 24. janúar 2026 19:38

Alex Jeffrey Pretti var skotinn til bana fyrr í dag af fulltrúum ICE. Mynd- Facebook.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ástandið í Minneapolis í Bandaríkjunum er sagt vera orðið afar eldfimt í kjölfar þess að í annað sinn á skömmum tíma hafa útsendarar Útlendingaeftirlitsins (ICE) orðið bandarískum ríkisborgara að bana. Tvennum sögum fer af aðdraganda þess að viðkomandi var skotinn en myndband sýnir að hann lá í jörðinni þegar hann var skotinn

Aðgerðum ICE hefur verið mótmælt af miklum krafti í borginni vikum saman. Ástandið varð enn elfimara eftir að kona að nafni Renee Good var skotin til bana af útsendara ICE en talsmenn stjórnvalda í Washington hafa borið við nauðvörn en fulltrúar yfirvalda í Minnesota ríki og andstæðingar aðgerða ICE hafa sagt um kaldrifjað morð að ræða.

Sá sem var skotinn til bana fyrr í dag er 37 ára gamall karlmaður, Alex Jeffrey Pretti, en hann mun hafa verið virkur í mótmælum gegn aðgerðum ICE í borginni. Ljósmyndir á samfélagsmiðlum sýna hann í orðaskaki við útsendara ICE skömmu áður en hann beið bana.

Myndband, sem tekið var hinum meginn við götuna, og dreift hefur verið á samfélagsmiðlum og verið birt í fjölmiðlum vestanahafs sýnir Pretti liggja í götunni með marga ICE-liða ofan á sér og sjást sumir þeirra slá og sparka í hann áður en skyndilega heyrist nokkur fjöldi skota og ICE-liðarnir hörfa þá snögglega frá honum. Erfitt er að sjá af myndbandinu hvaðan og frá hverjum í hópnum fyrstu skotin komu.

Með vopn

Fyrir liggur að Pretti var með byssu á sér og mun hann hafa verið með skotvopnaleyfi en tvennum sögum fer af því hvort hún hafi verið allan tímann í hulstri sem sést á ljósmyndum af orðaskaki hans við útsendara ICE. Talsmaður heimavarnarráðuneytisins fullyrðir hins vegar að Pretti hafi beint byssunni að ICE liðum en hvernig hann á að hafa gert það liggjandi í götunni er ekki ljóst.

Lögreglustjóri Minneapolis segir vísbendingar um að fleiri en einn fulltrúar hafi skotið Pretti.

Tim Walz ríkisstjóri Minnesota hefur enn á ný krafist þess að ICE-liðar verði dregnir til baka frá ríkinu af alríkisstjórninni í Washington. Hann hefur beðið íbúa borgarinnar að halda ró sinni en mikill órói og mótmæli hafa orðið nærri vettvangi og alríkisfulltrúar hafa beitt táragasi til að dreifa fjöldanum. Walz hefur krafist þess að Minnesota ríki en ekki fulltrúar alríkisins hafi umsjón með rannsókn málsins.

Myndbandið má sjá í umfjöllun svæðisstöðvar CBS í Minneapolis hér fyrir neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Eigandi Ormsson hefur áhyggjur af íslensku samfélagi: „Tregðan er farin að sjást og merkin eru skýr“

Eigandi Ormsson hefur áhyggjur af íslensku samfélagi: „Tregðan er farin að sjást og merkin eru skýr“
Fréttir
Í gær

Pálmi Gests hissa á umræðunni: „Fíflunum hefur fjölgað með samfélagsmiðlunum“

Pálmi Gests hissa á umræðunni: „Fíflunum hefur fjölgað með samfélagsmiðlunum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lokatölur úr Reykjavík – Sjálfstæðisflokkurinn tvímælalaus sigurvegari borgarstjórnarkosninganna

Lokatölur úr Reykjavík – Sjálfstæðisflokkurinn tvímælalaus sigurvegari borgarstjórnarkosninganna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bæjarstjóri skaut föstum skotum á Kristrúnu eftir að fyrstu tölur bárust – „Það tókst ekki“

Bæjarstjóri skaut föstum skotum á Kristrúnu eftir að fyrstu tölur bárust – „Það tókst ekki“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ