fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
Fréttir

Þarf að borga fyrir fráveituna þótt húsið sé ekki tilbúið

Jakob Snævar Ólafsson
Föstudaginn 22. maí 2026 16:30

Garðabær.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur komist að þeirri niðurstöðu að eiganda einbýlishúss í Garðabæ sem er ekki fullbyggt beri þrátt fyrir það að greiða fráveitugjald til bæjarins. Mótmælti eigandinn því harðlega og vildi meina að þar sem enginn búi í húsinu og það sé óklárað sé það ótækt að þurfa að greiða þessi gjöld.

Eigandinn kærði álagningu Garðabæjar sem hafði hafnað beiðni hans um að vatns- og fráveitugjöld yrðu felld niður. Vísaði hann til þess að álagningin væri miðuð við að byggingu húss á lóðinni væri lokið, en svo væri ekki. Var beiðninni hafnað á þeim grundvelli að gjöldin væru miðuð við fasteignamat Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar og ráðlagði bærinn eigandanum að snúa sér þangað.

Eigandinn kærði álagninguna þá til nefndarinnar og sagði í kærunni að húsið væri rúmlega fokhelt og ekki væri búið í því, enda væri það ekki íbúðarhæft. Fór hann fram á að holræsa- og vatnsgjald yrði fellt niður á þessum forsendum en húsið væri fjarri því að vera fullfrágengið.

Garðabær benti í sínum andsvörum meðal annars á að samkvæmt fasteignamati væri húsið metið á rétt yfir 127 milljónir króna. Bærinn hefði lagt öll gjöld á húsið miðað við þetta mat. Matið væri raunar ekki miðað við að húsið væri fullklárað heldur að það væri á byggingarstigi 4, þ.e. fokhelt.

Tengt

Benti Garðabær einnig á að samkvæmt lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna sé heimilt sé að innheimta fráveitugjald af öllum fasteignum þar sem tenging sé fyrir hendi við mörk fasteignar.

Bærinn sagði að álagning fráveitugjalds ráðist því ekki af því hvort hús sé fokhelt, búið í því eða það teljist fullfrágengið. Í þessu máli væri ljóst að búið væri að tengja fráveitu, enda byggingin komin á matsstig 4 og fyrir lægi húsmat, lóðamat og fasteignamat. Það hvort eiginleg notkun væri á fráveitu hefði ekki neina þýðingu.

Þegar kom að þeim lið kæru eigandans að fella ætti einnig niður vatnsgjaldið vísaði Garðabær til þess að álagning vatnsgjalds félli utan valdssviðs úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þó mætti benda á að sótt hafi verið um tengingu fyrir vatn vegna hússins í júní 2025 og hafi tengingu verið lokið í júlí sama ár. Megi ljóst vera að vatn sé ekki tengt inn á hús nema fráveita sé jafnframt tengd.

Borga

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála tekur undir með Garðabæ um að í lögum sé ekki heimild fyrir því að kæra álagningu vatnsgjalds til nefndarinnar. Vísar nefndin því þessum lið kærunnar til innviðaráðherra.

Hvað varðar fráveitugjaldið segir nefndin að í lögum sé heimilt að innheimta fráveitugjald af öllum fasteignum þar sem tenging sé fyrir hendi við mörk fasteignar. Sé gengið út frá því að þegar fráveita hafi lokið skyldum sínum varðandi tengingu fasteignar sé heimilt að hefja innheimtu fráveitugjalds.

Í þeim tilvikum þegar matsverð fasteignar liggi ekki fyrir við álagningu fráveitugjalds, en tenging sé fyrir hendi, sé heimilt að ákveða fráveitugjald með hliðsjón af áætluðu fasteignamati eignarinnar fullfrágenginnar og beri þá að taka mið af fasteignamati sambærilegra fasteigna í sveitarfélaginu. Í ljósi þessa verði ekki gerð athugasemd við álagningu fráveitugjalds vegna hússins þótt það sé ekki fullfrágengið.

Nefndin segir að samkvæmt fasteignaskrá sé húsið skráð fokhelt og í skránni séu jafnframt gefnar skýringar á því hvenær mannvirki teljist fokhelt og tekið fram að verðmæti mannvirkis reiknist inn í fasteignamat við fokheldi. Fráveitugjaldið sem lagt hafi verið á eignina sé innan þeirra marka sem heimild sé fyrir í lögum.

Það er því niðurstaða nefndarinnar að álagning fráveitugjaldsins skuli standa og eigandi hússins þarf því að greiða gjaldið þótt húsið sé ekki fullklárað og enginn fluttur inn.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Íslenska ríkið bótaskylt vegna vítaverðrar framgöngu Tómasar í plastbarkamálinu

Íslenska ríkið bótaskylt vegna vítaverðrar framgöngu Tómasar í plastbarkamálinu
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Hrafn sá mann „chugga“ flösku af Egils Orku

Hrafn sá mann „chugga“ flösku af Egils Orku
Fréttir
Í gær

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“
Fréttir
Í gær

Segir að upptaka evru myndi lækka verðbólgu en minnka sveigjanleika

Segir að upptaka evru myndi lækka verðbólgu en minnka sveigjanleika
Fréttir
Í gær

Pawel ánægður með að Sjálfstæðismenn vilji samþykkja þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður – „Mistök í skjalavinnslu“ segir Jón Pétur

Pawel ánægður með að Sjálfstæðismenn vilji samþykkja þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður – „Mistök í skjalavinnslu“ segir Jón Pétur
Fréttir
Í gær

Vill aukið eftirlit með störfum lögreglu – „Nú hefur lögreglan beitt rafbyssu á mann sem var að hlaupa í burtu frá henni“

Vill aukið eftirlit með störfum lögreglu – „Nú hefur lögreglan beitt rafbyssu á mann sem var að hlaupa í burtu frá henni“
Fréttir
Í gær

Láta Snorra heyra það vegna færslu um tjáningarfrelsi og ESB – „Ef svo er, þá er þessi málflutningur þinn alveg óboðlegur“

Láta Snorra heyra það vegna færslu um tjáningarfrelsi og ESB – „Ef svo er, þá er þessi málflutningur þinn alveg óboðlegur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“