

Michael O´Leary, forstjóri flugfélagsins Ryanair, vill að áfengi verði bannað á flugvöllum á morgnanna. Myndi það draga úr óspektum í flugvélum og hættunni á að farþegar umturnist í flugdólga.
„Ég skil ekki af hverju verið er að selja áfengi á börum á flugvöllum klukkan fimm eða sex á morgnanna. Hver þarf að vera drekka bjór á þeim tíma sólarhrings?“ spyr O´Leary í viðtali við breska blaðið The Times.
Hér á Íslandi fara margar flugvélar frá Keflavík til Evrópu snemma á morgnanna. Margir fá sér bjór eða vínglas á flugvellinum, oft til að róa taugarnar fyrir þá sem eru flughræddir.
Það hefur hins vegar margsinnis gerst, bæði hér og annars staðar að þessi drykkja fer úr böndunum og þá þurfa flugþjónar um borð í flugvélum að takast á við afleiðingarnar.
Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair er eitt af þeim stærstu í heiminum. O´Leary hefur áður tjáð sig um að hann vilji draga úr áfengisneyslu í kringum flugferðir. Drykkja breskra farþega á leið til Spánar og annarra sólarlanda hefur verið sérstakt vandamál og ekki er óalgengt að farþegarnir í ölæði stökkvi af svölunum ofan í sundlaugina þegar þeir koma upp á hótel. Hafa af því hlotist mýmörg stórslys.
Segir O´Leary flugvellina vera að græða á þessu en flugfélögin að tapa.
„Þeim finnst ekkert að því að selja þessu fólki eins mikið áfengi og það vill af því þeir vita að þeir útvista vandamálinu til flugfélaganna,“ segir hann.