

Liverpool hefur ákveðið að breyta áformum sínum um hækkun miðaverðs eftir mótmæli stuðningsmanna á Anfield.
Stuðningsmenn létu óánægju sína í ljós í leik gegn Crystal Palace þar sem þeir lyftu upp gulum spjöldum og héldu á borðum með skilaboðum til eigenda félagsins, Fenway Sports Group, um að „eyðileggja ekki sál Anfield“. Þá var einnig borði með mynd af eigandanum John W. Henry og skilaboðunum: „Hlustið á stuðningsmenn, ekki drepa Kop-stúkuna.“
Liverpool hafði áður kynnt áform um að hækka miðaverð í takt við verðbólgu næstu þrjú árin, en hefur nú ákveðið að draga úr hækkunum.
Í nýrri yfirlýsingu segir að miðaverð fyrir tímabilið 2026/27 muni hækka um þrjú prósent, en síðan verði verð fryst tímabilið á eftir.
Félagið segir að áfram verði rætt við stuðningsmannaráð um framtíðarlausnir, þar á meðal leiðir til að halda kostnaði niðri.
Fulltrúar stuðningsmanna fögnuðu ákvörðuninni og sögðu mikilvægt að félagið hefði hlustað á rödd þeirra í þessu máli.