

Margir íbúar í Breiðholti eru orðnir langþreyttir á sóðaskap á lóð í Fellahverfi. Í húsnæðinu að Iðufelli 14 var Fjölskylduhjálp Íslands áður til húsa, en hún lokaði um síðustu áramót sökum fjárskorts.
Formaður Fjölskylduhjálpar, Ásgerður Jóna Flosadóttir, sagði í viðtölum ekki vilja hjá stjórnvöldum til að styðja starfsemina áfram.
„Ég hafði samband við Reiti fasteignafèlag. Þeir eru eigendur iðufells 14 þar sem fjölskylduhjàlpinn var. Bað þá um að koma taka til á svæðinu. Mæli með að fleiri sendi líka,“
skrifar einn íbúi í Facebook-hópnum Íbúasamtökin Betra Breiðholt í gær og birtir myndir af sóðaskapnum á lóðinni.

Á mánudag hafði annar íbúi gert slíkt hið sama. „Svona lítur bílastæðið út sem tilheyrði Fjölskylduhjálpunni en í dag tilheyri það borginni og gaf ég borginni tíma til föstudaga til að hreinsa þetta.“ Sagðist íbúinn annars kalla til blaðamenn og fróðlegt yrði að sjá hvað gerðist.

Fjölmargar athugasemdir eru undir eldri færslunni og íbúar ekki sáttir. Benda nokkrir á að svo virðist sem íbúar í nágrenninu noti lóðina til að henda rusli. „Fólk í næstu blokkum kemur og hendir bæði rusli og húsgögnum þarna,“ segir ein kona.
Einn leggur til að íbúar taki sig saman og hreinsi lóðina og annar minnir á Plokkdaginn sem er næsta sunnudag.
„Mér finnst Breiðholtið víðast hvar ótrúlega óhreint og mikið rusl sem augljóslega hefur verið hent út á víðavangi, Er fólki virkilega sama um það að hverfið sem þau búi í sé svona skítugt?, ég vill endilega sjá fleira fólk plokka á plokkdaginum mikla nkm sunnudag 26 apríl, ég var sá eini sem ég tók eftir að plokka í fyrra í bökkunum.“
