

Landsréttur hefur staðfest dóma yfir manni að nafni Dumitru-Aurel Ivan en hann hafði hlotið fangelsisdóma í héraðsdómi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum og fyrir að bera kynfæri sín á almannafæri. Fyrir Landsrétti voru málin tvö sameinuð í eitt.
Ivan var ákærður fyrir að hafa í janúar 2021 áreitt 13 ára gamla stúlku kynferðislega en áreitnin fólst í að segja við stúlkuna að hún væri falleg, taka í og kyssa hönd hennar, kyssa hana á munninn og snerta og nudda kynfærasvæði hennar utanklæða og eftir að hún hafði komið sér undan spurt hvort þau ættu að gera „þetta“ á eftir.
Hann var sömuleiðis ákærður fyrir að áreita aðra stúlku, sem þá var 14 ára, árið 2022 með því að káfa á kynfærum hennar utanklæða í verslun 10/11 í Austurstræti í Reykjavík.
Í dómi Landsréttar er vitnað í dóm héraðsdóms um að í síðara atvikinu liggi fyrir myndbandsupptaka úr öryggismyndavél í versluninni. Þar megi sjá Ivan litast um í versluninni og þegar aðrir viðskiptavinir voru farnir framhjá honum ganga hröðum og ákveðnum skrefum að stúlkunni, beygja sig niður með henni að framanverðu og setja hönd á kynfærasvæði hennar. Þótt ekki sjáist greinilega á hvaða hátt hann snerti hana megi ráða af myndbandsupptökunni að stúlkunni hafi brugðið mikið við atvikið, bakkað aftur á bak og svo hlaupið frá Ivan. Þá liggi fyrir að hún hafi leitað strax í kjölfarið til starfsmanns verslunarinnar sem kallað hafi lögreglu á vettvang. Hafi starfsmaðurinn sagt að stúlkan hefði sagt að maður hefði snert hana, þótt ekki hefði komið fram hvar, og hefði hún verið í miklu uppnámi, verið hrædd og grátið.
Segir í dómnum að upptakan sé í samræmi við framburð stúlkunnar í skýrslutöku hjá lögreglu. Skýringar Ivan á atvikinu séu ótrúverðugar og ekki í samræmi við upptökuna. Staðfesti Landsréttur sakfellingu Ivan fyrir bæði atvikin.
Í hinu málinu, sem sameinað var kynferðisbrotunum gegn stúlkunum, var Ivan ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa að kvöldi í mars 2023 innandyra á Háskólatorgi gengið að glugga og berað og handleikið kynfæri sín og þannig sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi sem hafi verið til þess fallið að særa blygðunarsemi þeirra sem urðu vitni að því og verða til opinbers hneykslis en brotaþoli, kona, var stödd hinum megin við gluggann og varð vitni að atferli Ivan.
Loks var hann ákærður fyrir sams konar athæfi með því að hafa í október 2023 utandyra við verslunina Mini Market spurt konu hvað klukkan væri og í framhaldi af því berað kynfæri sín og þannig sært blygðunarsemi hennar og annarra sem urðu vitni að því.
Landsréttur segir upptökur úr öryggismyndavélum renna stoðum undir framburði kvennanna sem hafi verið trúverðugir en það sama megi ekki segja um framburð Ivan í málinu. Var sakfelling hans því einnig staðfest í þessu máli.
Þar sem Ivan hefur áður hlotið dóm fyrir svipuð brot var það metið honum til refsiþyngingar og við hæfi þótti að dæma hann í 12 mánaða fangelsi fyrir brotin fjögur. Er það í raun sami dómur og hann hlaut í héraði en eins og áður segir var um tvö aðskilin mál að ræða sem sameinuð voru fyrir Landsrétti. Í héraði var Ivan dæmdur í 8 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrotin gegn stúlkunum en 4 mánaða fangelsi fyrir skiptin tvö þar sem hann beraði kynfæri sín.
Dóm Landsréttar í heild er hægt að nálgast hér.