fbpx
Mánudagur 13.maí 2024
Fréttir

Þingmenn ósáttir við nýjar skrifstofur: „Ég gæti eins verið lokaður inni á Litla-Hrauni“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 30. janúar 2024 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þingmenn virðast vera misánægðir með Smiðju, nýja skrifstofubyggingu Alþingis, ef marka má umfjöllun í Morgunblaðinu í dag.

Meðal þess sem þingmenn gagnrýna er að þeim er bannað að hengja upp myndir á veggi og þá mega þeir ekki hafa eigin húsgögn.

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, þarf eins og aðrir þingmenn að sætta sig við sófa sem Alþingi leggur þeim til. Bergþór segir sófann þann óþægilegasta sem hannaður hefur verið enda glímir hann við bakverki.

Þá segir hann að þingflokkum sé grautað saman í húsinu og aðskilnaður þingflokka sé enginn þegar kemur að skrifstofunum. „Þetta er eins kalt og sálardrepandi og hægt er að hafa það,“ segir hann.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, er almennt ánægð með nýju aðstöðuna en segir að það sé dálítið hljóðbært á milli skrifstofa.

Eyjólfur Ármannsson, þingmaður Flokks fólksins, er allt annað en sáttur og efast um að hann muni nota sína skrifstofuaðstöðu mikið.

„Útsýnið úr minni skrif­stofu er bara hvít­ur vegg­ur, ég gæti eins verið lokaður inni á Litla-Hrauni,“ seg­ir Eyj­ólf­ur við Morgunblaðið og bætir við að honum líði eins og hann sé í húsi sem var ekki hannað fyrir hann heldur fyrir arkitektinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hættulegasti hlutur heims – Drepur einstakling á tveimur dögum sem horfir á hann í fimm mínútur

Hættulegasti hlutur heims – Drepur einstakling á tveimur dögum sem horfir á hann í fimm mínútur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Víkingur Heiðar blandar sér í þjóðfélagsumræðuna – „Ég held að þjóð þín sé reyndar komin með nóg af gífuryrðunum“

Víkingur Heiðar blandar sér í þjóðfélagsumræðuna – „Ég held að þjóð þín sé reyndar komin með nóg af gífuryrðunum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fyrrum fjármálastjóri dró aha.is fyrir dóm – Sagðist eiga inni orlof en var á móti sakaður um að hafa ofreiknað eigið orlof með bókhaldsbrögðum

Fyrrum fjármálastjóri dró aha.is fyrir dóm – Sagðist eiga inni orlof en var á móti sakaður um að hafa ofreiknað eigið orlof með bókhaldsbrögðum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nöfn unga fólksins sem lést í banaslysinu á Eyjafjarðarbraut

Nöfn unga fólksins sem lést í banaslysinu á Eyjafjarðarbraut