

Það var skömmu eftir miðnætti í nótt sem forstjóri Dominos Pizza á Íslandi greindi frá því að félagið ætlaði að sjá fjöldahjálparstöðvum fyrir öllum þeim flatbökum sem Grindvíkingar þar þurfa, hvenær sem er sólarhringsins. Tók hann fram að það væri hreinlega skylda að hjálpa í aðstæðum sem þessum.
Domino’s mun sjá fjöldahjálparstöðum fyrir öllum þeim pizzum sem þörf er á hvenær sem er sólarhringsins. ❤️🍕
— Magnus Haflidason (@MagnusHaflida) November 11, 2023
Ekki reiknaði Magnús þó með því að vera í kjölfarið tekinn á teppið, en netverji deildi færslu hans og sakaði Dominos um dyggðaskreytingu.
„Ef þú ætlar að gera góðverk. Gerðu góðverk, en ekki segja neinum frá því. Ef þú segir einhverjum frá því, þá ertu ekki að gera þetta góðverk fyrir þá sem á þurfa að halda, heldur fyrir sjálfan þig. Legðu egóið til hliðar ef þú ætlar að gera góðverk,“ sagði Arnar nokkur á Twitter og bætti við í athugasemd við færslu Magnúsar:
„Það er ekki dyggð að segja öllum frá því hvað þú sért frábær. Gerðu góðverk án þess að flagga því,“ sagði Arnar og bætti við að það eigi enginn að nýta sér neyð annarra í markaðssetningu.
Segja má að þessi afstaða hafi fengið lítinn meðbyr. Aðrir bentu á að þessi gjörningur væri til þess fallin að hvetja önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama, sem og að láta skilaboðin berast til Grindvíkinga. Það þurfi einbeittan vilja til að túlka góðverk Dominos með neikvæðum hætti.
Magnús var fljótur að svara fyrir sig og sagði að Rauði krossinn hafi verið þakklátur fyrir þetta framtak.
„Hvaða vitleysa er þetta? Náði ekki inn til Rauða krossins og ákvað að vekja athygli á þessu. Það er matur fyrir 100+ manns þegar í vinnslu. Það er okkar skylda að hjálpa fólki í svona aðstæðum. Erum klár yfir helgina. Ef það móðgar fólk þá má það panta sínar pizzur annars staðar.“
Þú ert nú meiri pappakassinn, hættu að gagnrýna þegar það er verið að gera góðverk. Þú getur hleypt fólki frá Grindavík heim til þín og sagt engum frá. Grjót haltu síðan kjafti og slökktu á símanum.
— jonasdagurjr (@jonasdagurjr) November 11, 2023
Sorry, en ef þú gerir góðverk – jú, segðu frá því, ef þú vilt? Góðverk er góðverk og sumum finnst gaman að lesa um þau 🤷♀️
— Kötturinn™️ (Anarkisi) (@AtliKisi) November 11, 2023
Hann ætlar sko aldrei að gera góðverk aftur. pic.twitter.com/2wM7uiGVlA
— Ólöf Tara🔞 (@OlofTara) November 11, 2023
og já SPYRJUM AÐ LEIKSLOKUM….
munum að samhengið er pizzustaður að gefa mat til fólks sem er á flótta undan mögulegu eldgosi. Spyrjum að leikslokum punktur is takk fyrir .is
— Hörður (@horduragustsson) November 11, 2023