fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Fréttir

Boðar mikil vandræði ef Sundabraut verður lögð ofan á gamla ruslahauginn í Gufunesi 

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 2. nóvember 2023 17:00

Mikið magn af allskonar úrgangi er á svæðinu. Myndin er úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það getur haft í för með sér ýmiss konar hættur ef hróflað verður við gamla urðunarstaðnum á Gufunesi vegna fyrirhugaðrar lagningar Sundabrautar.

Þetta kemur fram í umsögn Umhverfisstofnunar við matsáætlun vegna umhverfismats Sundabrautar sem Vegagerðin, í samráði við Reykjavíkurborg, hefur lagt fram.

Gríðarlegt magn af allskonar sorpi

Í umsögninni er bent á að lagðir hafi verið fram valkostir þar sem fyrirhugað er að hluti Sundabrautar liggi um aflagðan urðunarstað höfuðborgarsvæðisins í Gufunesi. Urðunarstaðurinn var aflagður að mestu um 1990 og að fullu árið 2001.

„Varlega áætlað voru urðuð um 5 milljón rúmmetrar af óflokkuðum úrgangi, þ.m.t. spilliefnum, á urðunarstaðnum. Umhverfisstofnun bendir á að haugar sem þessir eru viðkvæmir fyrir hvers konar röskun sem truflar jafnvægi haugsins og getur haft í för með sér ýmiss konar hættur, s.s. gasmengun, mengun grunn- og yfirborðsvatns ásamt sprengihættu. Þeir valkostir, sem lagðir eru fram, fela allir í sér einhvers konar röskun á haugnum, hvort sem um er að ræða Sundabraut sjálfa eða tengiveg við Hallsveg. Skiptir engu hvort röskunin feli í sér fergingu eða rof á haugnum, hvort tveggja raskar jafnvægi hans,“ segir í umsögninni.

Gæti boðað hættu fyrir íbúa

Í umsögninni, sem fjallað var meðal annars um í Morgunblaðinu í morgun, kemur fram að Umhverfisstofnun sjái ekki hvernig framkvæmdaaðilar hafi hugsað sér að komast hjá því að rjúfa hauginn.

Bendir stofnunin á að ekki sé fyrir hendi fullnægjandi þekking á því hvað var urðað á urðunarstaðnum í Gufunesi, annað en að þangað fór allur úrgangur óflokkaður í áratugi.

„Að mati Umhverfisstofnunar krefst aðgerð eins og bygging Sundabrautar um aflagðan urðunarstað umfangsmikilla rannsókna á áhrifum framkvæmdarinnar á urðunarstaðinn og mikilvægt að þeir aðilar sem komi að slíkum rannsóknum hafi mikla þekkingu og reynslu af slíkum rannsóknum og framkvæmdum. Þá mun öll vinna á svæðinu vera áhættusöm fyrir umhverfið og ekki síður fyrir heilsu þeirra sem þar vinna, íbúa í nærliggjandi hverfum og framkvæmdaaðila. Úrgangurinn, sem urðaður var á urðunarstaðnum í Gufunesi, fór þangað inn óflokkaður og því ekki hægt að tryggja að það sem grafið yrði upp og þyrfti að fjarlægja væri ekki spilliefni.“

Loks nefnir stofnunin að fari svo að haugnum verði raskað þannig að flytja þyrfti úrgang af staðnum, til dæmis til hreinsunar eða urðunar, þá hafi enginn urðunarstaður í landinu heimild til móttöku á þessum úrgangi. Þá sé enginn staður er á landinu með leyfi til hreinsunar á menguðum jarðvegi. Og ef eitthvað af þessum úrgangi væri brennanlegur sé til staðar brennslustöð í landinu en erfitt geti reynst að flokka þennan úrgang til brennslu.

Umsagnir um málið má nálgast hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ragnar fór úr rannsókn á ráni í mótmælin við Alþingi – „Ég get ekki bakkað úr svona aðstæðum og ég ætla ekki að skilja þá eftir“

Ragnar fór úr rannsókn á ráni í mótmælin við Alþingi – „Ég get ekki bakkað úr svona aðstæðum og ég ætla ekki að skilja þá eftir“
Fréttir
Í gær

Gagnrýnir Þorstein fyrir ummæli um verkakonu í frystihúsi – „En hvert skyldi nú sannleiksgildi þessara orða vera?“

Gagnrýnir Þorstein fyrir ummæli um verkakonu í frystihúsi – „En hvert skyldi nú sannleiksgildi þessara orða vera?“
Fréttir
Í gær

Var með mikið magn af OxyContin innvortis

Var með mikið magn af OxyContin innvortis
Fréttir
Í gær

Efling boðar til aðgerða gegn 100 veitingastöðum

Efling boðar til aðgerða gegn 100 veitingastöðum