fbpx
Laugardagur 23.maí 2026
Fréttir

Harmleikurinn á Selfossi – Fyrrum verjandi krafðist 14 milljóna fyrir 80 daga vinnu en lögregla mótmælti óhóflegri tímaskýrslu

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 10. október 2023 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sverrir Sigurjónsson lögmaður stefndi lögreglustjóranum á Suðurlandi vegna verjendastarfa sinna í þágu karlmanns á þrítugsaldri sem er grunaður um að hafa orðið Sofiu Sarmite Kolesnikovu að bana þann 27. apríl. Sofia fannst látinn í heimahúsi á Selfossi og í kjölfarið voru tveir úrskurðaðir í gæsluvarðhald en öðrum var fljótlega sleppt.

Rannsókn lögreglu hefur beinst að hugsanlegu manndrápi í samræmi við bráðabirgðaniðurstöður krufningar. Þeim grunaða hefur verið haldið í gæsluvarðhaldi síðan, framan af í einangrun. Verjandi mannsins er í dag Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, en upprunalega gætti Sverrir hagsmuna mannsins frá handtöku og allt fram í miðjan júlímánuð, eða í 80 daga.

Fyrir störf sín gaf Sverrir út reikning til sakbornings upp á tæpar 14 milljónir. Byggðist reikningurinn á tíma- og akstursskýrslu sem tiltóku að lögmaðurinn hefði starfað um 441 klukkustund í þágu sakbornings frá handtöku fram til 15. júlí og þar að auki ekið rúmlega 5.000 kílómetra. Fyrir hverja vinnustund rukkaði lögmaðurinn 24.300 kr. auk virðisaukaskatts.

Sakborningur hafnaði greiðslu reiknings þann 19. júlí og fór Sverrir því fram á að dómurinn ákveði þóknun hans vegna málsins. Lögreglustjórinn á Suðurlandi greip til varna og krafðist þess að þóknunin yrði ákvæði lægri en samkvæmt útgefnum reikningi. Áhugavert er að skoða hversu hratt mál Sverris fór í gegnum kerfið, en greinilega ganga mál hraðar á Suðurlandi. Sverrir lagði kröfu sína fram til héraðsdóms Suðurlands þann 24. ágúst og málið var tekið til úrskurðar 12. september og úrskurður kynntur þann 27. september. Málinu var áfrýjað til Landsréttar 29. september og birti Landsréttur niðurstöðu sína 3. október.

Veitti niðurbrotnum einangrunarfanga sáluhjálp

Fram kom að sakborningur hafi verið handtekinn í apríl og gert að sæta gæsluvarðhaldi og einangrun. Við komu í fangelsið á Hólmsheiði hafi sakborningur verið í miklu áfalli og liðið afar illa vegna andláts Sofiu. Því hafi Sverrir þurft að vera í stöðugu sambandi við skjólstæðing sinn, til að hughreysta hann og svo til að vera viðstaddur fjölmargar skýrslutökur, húsleitir og setja fram kröfur um gögn og upplýsingar hjá lögreglu. Sverrir hafi þurft að vera til taks allan sólarhringinn og því misst af ferðalögum og uppákomum sem hann hafði verið búinn að bóka yfir sumarið.

Tímagjald sé í samræmi við reglur, en reikningur ekki fengist greiddur. Lögreglan hélt því þó fram að Sverrir hefði eytt mun meiri tíma í verjendastörfin heldur en þörf var á. Þessu var Sverrir ósammála. Skjólstæðingur hans hafi verið í einangrun, í áfalli og þurft á mikilli aðstoð að halda. Sálfræðingur Fangelsismálastofnunar hafi lýst því yfir að gæsluvarðhaldsvistin hafi verið sakborningi mjög erfið og gengið nærri honum.

Í héraðsdómi var rekið að hlutverk skipaðs verjandi væri að draga fram í málinu allt sem verða megi skjólstæðingi hans til sýknu eða hagsbóta. Eins að gæta réttar skjólstæðings í hvívetna.

Tímaskýrsla úr hófi

Tímaskýrsla Sverris var 13 blaðsíður að lengd og þar mátti finna 167 færslur vegna vinnu og 47 færslur vegna aksturs. Áberandi í skýrslunni var hversu oft Sverrir gerði sér ferð á Hólmsheiði og hvað hann varði þar löngum tíma, en fram komi í skýrslum að stundum hafi hann verið að ræða um daginn og veginn við skjólstæðing sinn. Eins hafi Sverrir farið í verslanir fyrir skjólstæðing til að færa honum mat, drykk og skemmtiefni.

„Þá kemur fram að sóknaraðili hefur eytt verulegum tíma í að hughreysta sakborning og ræða við hann á nótum sálgæslu. Þannig eru í tímaskýrslunni fjölmargar færslur sem ekki varða raunverulegar starfsskyldur skipaðs verjanda,“ sagði dómari í héraðsdómi.

Taldi héraðsdómari að verulegur hluti vinnu Sverris hafi verið utan starfsskyldna hans. Sama væri með akstur, en hann hefði frekar getað afgreitt erindin með símtali. Ekki sé hægt að bera því við að Sverrir hafi verið á bakvakt vegna málsins í allt sumar, og ekki sé hægt að taka tillit til ferðalaga og viðburða sem Sverrir hafi hætt við vegna málsins.

Ákvað dómari því að miða við að Sverrir hefði unnið 204 stundir og ekið 1.080 kílómetra. Hann ætti því rétt á rúmum 6 milljónum fyrir störfin og aksturskostnað upp á 152 þúsund.

Lögreglustjórinn á Suðurlandi sætti sig ekki við þessa niðurstöðu og áfrýjaði til Landsréttar. Landsréttur rakti að málinu gegn fyrrum skjólstæðingi Sverrir væri ekki lokið. Breytti engu þó að Sverrir væri ekki lengur verjandi í málinu, raunin væri áfram sú að ekki væri tímabært að kveða á um þóknun líkt og hafði verið gert í héraði. Því var úrskurður héraðsdóms felldur úr gildi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Rauðblesótt tryppi gengur laust við þjóðveg 1 – Lögregla biður eigandann að gefa sig fram

Rauðblesótt tryppi gengur laust við þjóðveg 1 – Lögregla biður eigandann að gefa sig fram
Fréttir
Í gær

Plastbarkamálið: Getur Tómas starfað áfram sem læknir?

Plastbarkamálið: Getur Tómas starfað áfram sem læknir?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vendingar í sérstæðu sakamáli frá árinu 2014 – Ákærður fyrir að frelsissvipta og misþyrma konu

Vendingar í sérstæðu sakamáli frá árinu 2014 – Ákærður fyrir að frelsissvipta og misþyrma konu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur saumar að sægreifunum: „Þennan leik er löngu tímabært að jafna“

Dagur saumar að sægreifunum: „Þennan leik er löngu tímabært að jafna“