fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Gunnari Smára hótað vopnuðu ofbeldi og rúður brotnar í húsnæði Sósíalista – „Viva Bjarni Ben!“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Sunnudaginn 4. september 2022 09:53

Gunnar Smári Egilsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Smári Egilsson, einn stofnenda Sósíalistaflokks Íslands, greinir frá því að hann hafi mátt sæta hótunum vegna stjórnmálaskoðanna sinna og að húsnæði flokksins hafi verið grýtt í gær. Telur hann ástæðu til að lögregla rannsaki orðræðuna hér á landi í garð sósíalista með tilliti til hatursorðræðu.

Gunnar greinir frá þessu á Facebook-síðu Sósíalistaflokksins.

Þar segir hann að fyrir tveimur dögum hafi hann fengið eftirfarandi skilaboð send:

„Þið eruð siðblind helvíti og farið beint þangað. Ég mun finna á endanum hvar þið eigið heima. Hugsaðu um fjölskylduna þína áður en þið haldið áfram. Ég vill ekki beita vopnum en þið gefið mér ekki færi á öðru.“

Ekki fyrstur til að hóta Gunnari

Gunnar Smári segir að hann hafi tilkynnt viðkomandi að þessar hótanir yrðu tilkynntar lögreglu, sem hann svo gerði. Þegar lögregla heyrði í Gunnari hafi hann sömuleiðis tilkynnt hótanir sem hann hefur fengið frá öðrum manni sem einnig hefur veist að Gunnari út á götu ásamt fjölskyldu hans.

„Ég sá hann síðast fyrir utan heimili mitt þar sem hélt hótunum sínum áfram, hrópaði alls kyns ókvæðisorð um meinta glæpi sósíalismans, sagði mér að láta Bjarna Benediktsson í friði og hrópaði að lokum: Viva Bjarni Ben!“

Gunnar segist hafa bent lögreglumanni á að deild lögreglu sem rannsakar hatursorðræðu ætti að kanna hvernig áhrifafólk í samfélaginu talar um sósíalisma, en sumir tali um sósíalisma og leggi þar að jöfnu sósíalíska verkalýðsbaráttu Sósíalistaflokksins við morð og ofbeldisverk alræðisstjórna, kennda við sósíalisma, á síðustu öld.

„Að þau sem vildu há róttæka verkalýðsbaráttu á Íslandi í dag væru í raun að leggja af stað í leiðangur sem hlyti að enda í afnámi lýðréttinda, morðum á pólitískum andstæðingum, jafnvel hungursneyðum sem myndu fella tugi milljóna manna. Undir slíkum hatursræðum gegn frelsisbaráttu hinna fátæku og valdalausu fengju vanstilltir menn þær grillur í hausinn að sjálfsagt væri að hóta og jafnvel meiða forystufólk í Sósíalistaflokknum og í verkalýðshreyfingunni.

Ég stakk upp á að lögreglan gæti t.d. haldið erindi í stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins, þar sem það hefur verið kennt lengi að sá sem aðhyllist hugsjónir sósíalismans myndi á endanum leiðast út í samskonar alræði og einræðisherrar sovéska og kínverska kommúnistaflokksins.“

Húsnæðið grýtt og tvær rúður brotnar

Síðan í gær hafi óprúttinn aðili eða aðilar grýtt félagsmiðstöð Vorstjörnunnar þar sem Sósíalistaflokkurinn leigir aðstöðu ásamt öðrum samtökum.

„Tveir gluggar voru brotnir þar sem merki flokksins og Samstöðvarinnar eru.

Auðvitað veit ég ekki hvort annar mannanna sem ég benti lögreglunni á hafi verið að verki. En auðvitað grunar mig það. Ég hef verið blaðamaður frá því fyrir næstum fjörutíu árum og oft verið hótað. Menn hafa ruðst inn á ritstjórnir blaða sem ég hef unnið á og gert sig breiða, ætt inn á skrifstofu mína, lokað á eftir sér og hótað líkamsmeiðingum. Ég hef fengið hótanir í pósti, símtölum, tölvupósti og sms. Mér datt aldrei í hug að tilkynna þessar hótanir og hef aldrei sagt frá þeim opinberlega.

Ekki fyrr en núna í vikunni. Heiftin í þessum mönnum og talsmáti, og fullvissa þeirra um að sósíalistar sé skepnur og svívirðingar, veldur því að ég óttast að þetta sé ekki bara belgingur, eins og hótanir eru oftast.“

Minnir á umræðuna í kringum Sólveigu Önnu

Gunnar minnir eins á átökin sem hafi átt sér stað í kringum Eflingu nýverið. Þá hafi sambærileg orðræða verið viðhöfð og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, kölluð Stalínisti, sögð halda dauðalista, þola ekki gagnrýni sem og annað sem hafi átt að skapa hugrenningatengsl milli Sólveigar og alræðisstjórna Sovétríkjanna.

„Og þegar Pútín sendi rússneska herinn inn í Úkraínu stigu menn á stökk, sem af einhverjum óskiljanlegum ástæðum eru taldir málsmetandi, til að lýsa yfir ábyrgð íslenska sósíalista á þessari innrás. Jafnvel þótt Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið í pólitísku samstarfi við Sameinað Rússland fram að innrásinni á Krím og Pútín er álíka langt frá því að vera Sósíalisti og BolsonaroTrump eða Erdogan, svo einhverjir af öðrum pólitískum samherjum Sjálfstæðisflokksins séu nefndir.“

Gunnar Smári telur að sósíalistar hér á landi þurfi að taka orðræðuna alvarlega sem nú vaði upp hér á landi. Algengt sé að sósíalistar séu sakaðir um að vilja alræðisstjórn.

„Þótt þetta sé banal orðræða þá virkar hún á fólk sem er einmitt banalt fyrir og það sér sósíalista sem stórhættulegt fólk sem verður að stoppa.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar