

Árásin var gerð um helgina. Í ávarpi sínu í nótt sagði Zelenskyy að „hryðjuverk sé glæpur sem verði að refsa fyrir“.
„Hryðjuverk ríkis eru einn svívirðilegasti alþjóðlegi glæpurinn, sem ógnar ekki aðeins einhverjum í heiminum heldur öllu alþjóðasamfélaginu. Ef hryðjuverk eru látin óátalin, ef hryðjuverkamönnum tekst að hræða svo mikið að einhver í heiminum er reiðubúinn til að loka augunum fyrir því, þá þýðir það tap, að við glötum frelsi okkar, glötum mannúð og lýðræði. Það er einmitt það sem Rússland vill. Þess vegna grípa Rússar til allra þessara hryðjuverka, allt frá flugskeytaárásum til alþjóðlegrar kreppu sem hryðjuverkaríkið framkallar,“ sagði Zelenskyy.
Hann bætti við að það beri að fordæma Rússland og einangra landið á öllum stigum fyrir atkvæðagreiðslu Allsherjarþings SÞ um „innlimum“ Rússa á hluta Úkraínu í rússneska ríkjasambandið.